Tenglar

3. apríl 2012 |

Deiliskipulag fyrir Tröllenda í Flatey auglýst á ný

Hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 8. mars 2012 að endurauglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Tröllenda í Flatey. Gerðar voru breytingar á skipulaginu vegna athugasemda sem bárust eftir fyrri auglýsingu, sem birtist 22. september 2011. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir Tröllenda í Flatey.

 

Stærð svæðins er 0,7 ha. Þar er gert ráð fyrir 5 lóðum, þar af eru tvær byggðar.

 

Sérstakir skilmálar eru skilgreindir í deilskipulagi um útlit og yfirbragð sem tekur mið af eldri húsum í Flatey.

 

Skipulagsuppdráttur með greinargerð og umhverfisskýrslu liggur frammi á skrifstofu Reykhólahrepps frá 28. mars til 11. maí 2012. Ennfremur eru gögnin aðgengileg hér á heimasíðu sveitarfélagsins undir Stjórnsýsla > Skipulag Reykhólahrepps og líka má skoða þau beint með því að smella hér.

 

Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppur, eða með tölvupósti, merktum Deiliskipulag fyrir Tröllenda, Flatey fyrir 11. maí 2012.

 

Deiliskipulagið fyrir Orlofshúsasvæði I sem samþykkt var af skipulagsstjóra ríkisins 18. desember 1992 fellur úr gildi við gildistöku nýja deiliskipulagsins.

 

Reykhólum, 23. mars 2012

Bogi Kristinsson Magnusen

skipulags- og byggingafulltrúi

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31