26. nóvember 2012 |
Hitaveitan á Reykhólum: Útvarpsviðtal við Einar Svein
Leifur Hauksson útvarpsmaður hringdi í morgun í Einar Svein Ólafsson, framkvæmdastjóra á Reykhólum, og ræddi við hann í beinni útsendingu á Rás 2. Tilefnið var útreikningur Einars varðandi hitaveitukostnað á Reykhólum, sem birtur var hér á vefnum á fimmtudag. Hægt er að hlusta á samtalið við Einar Svein með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
► Viðtal Leifs Haukssonar við Einar Svein Ólafsson á Rás 2
Fréttin á vef Reykhólahrepps á fimmtudag (þar fyrir neðan má einnig lesa m.a. athugasemdir Kristjáns Haraldssonar, framkvæmdastjóra Orkubús Vestfjarða):
► Húshitunin dýra á Reykhólum og auðlindaskatturinn