Tenglar

2. febrúar 2011 |

„Nýjar fréttir“ af Eyvindi og Höllu á Ströndum

Frá Drangavík á Ströndum. Ljósmynd á vefnum strandir.is: Vignir Örn Pálsson.
Frá Drangavík á Ströndum. Ljósmynd á vefnum strandir.is: Vignir Örn Pálsson.
1 af 2
Fyrir skömmu komu í leitirnar á Þjóðskjalasafni áður ókunn skjöl um veru Fjalla-Eyvindar og Höllu í Drangavíkurfjalli á Ströndum, barnsfæðingu þar og handtöku vorið 1763. Einnig um réttarhöld yfir þeim í Árnesi í Trékyllisvík og á Hrófbergi við Steingrímsfjörð sama vor og dóm sem upp var kveðinn á Broddanesi í Kollafirði 30. maí sama ár. Núna á laugardaginn, 5. febrúar kl. 16, flytur Kjartan Ólafsson, fræðimaður og fyrrverandi alþingismaður og ritstjóri, fyrirlestur í Skelinni, lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu á Hólmavík, um þessa merku uppgötvun undir titlinum Nýjar fréttir af Fjalla-Eyvindi á Ströndum. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.

 

Þetta kemur fram á fréttavefnum strandir.is.


Því mætti hnýta við, að á sínum tíma var Kjartan Ólafsson í stjórn Þörungavinnslunnar á Reykhólum, sem nú ber heitið Þörungaverksmiðjan.
 

Fjalla-Eyvindur í Wikipedia á íslensku

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« September 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30