Tenglar

11. júní 2012 |

Óskað eftir athugasemdum og sjálfboðaliðum

Frá Reykhóladögunum 2011.
Frá Reykhóladögunum 2011.

Undirbúningsnefnd Reykhóladaga 2012 boðar til almenns íbúafundar í matsal Reykhólaskóla kl. 20.30 annað kvöld, þriðjudag, og hvetur sem flesta til að koma. Á fundinum verður dagskrá þessara héraðsdaga kynnt eins og hún liggur fyrir á þessu stigi og óskað eftir athugasemdum. Jafnframt er óskað eftir sjálfboðaliðum til starfa við hina ýmsu viðburði - „enda mikilvægt að vinna saman við að gera dagana eins flotta og hægt er,“ segir Harpa Eiríksdóttir ferðamálafulltrúi.

 

Reykhóladagarnir í ár verða 26.-29. júlí eða frá fimmtudegi og fram á sunnudag eins og í fyrra. Þá voru þeir helgina eftir verslunarmannahelgi en núna verða þeir helgina á undan henni.

 

Ábendingar varðandi Reykhóladaga 2012 óskast

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« September 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30