24. nóvember 2011 |
Pítsuveitingahús í Reykhólaskóla
Pítsuveitingahús verður opið í matsalnum í Reykhólaskóla í kvöld, fimmtudag, frá kl. 18 til 21. Hægt verður að snæða pítsurnar á staðnum eða taka með sér heim. Tekið er við pöntunum frá kl. 15. Endilega pantið tímanlega í síma 894 9123 / 434 7805. Pítsurnar eru tólf tommur í þvermál og kosta 1.700 krónur með tveimur tegundum áleggs en aukaálegg kostar 200 krónur. Margaríta-pítsa (sósa og ostur) kostar 1.500 krónur. Þetta fjáröflunarframtak er eins og áður í höndum nemenda í 8.-10. bekk Reykhólaskóla.
Álegg af mörgu tagi er í boði, svo sem hakk, pepperóní, skinka, rjómaostur, sveppir, paprika, ananas, laukur og beikon.
Magnafsláttur er veittur þegar keyptar eru fleiri en ein pítsa: Tvær á 3.000 krónur og þrjár á 4.000 krónur.
Guðrún Guðmundsdóttir, fimmtudagur 24 nvember kl: 20:45
Æðislegar pizzur, takk fyrir mig : )