Skerðing á fjármagni til Vestfjarða yfir 100 milljónir
Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga, segir niðurstöðu fjárlaga ársins 2014 vonbrigði, sem og þann samdrátt sem er staðreynd í stuðningsumhverfi nýsköpunar, byggðaþróunar og menningar. Þetta kom fram á fundi stjórnar sambandsins fyrir stuttu. Aðalsteinn segir að áætla megi að bein áhrif á Vestfjörðum séu um 70 milljónir króna á þessu ári, sem komi til viðbótar ríflega 35 milljóna króna missi verkefnafjár sem áætlað var að kæmi með IPA-verkefnastuðningi.
Greint er frá þessu á fréttavefnum bb.is á Ísafirði.
Í umræðum á fundinum kom fram að gæta verði að fleiri atriðum er varða núverandi starfsemi hins opinbera. Breytingar séu boðaðar í starfsemi sýslumanna og Þjóðkirkjunnar og í undirbúningi væru breytingar í stjórnsýslu fiskeldismála.