Tenglar

27. janúar 2016 |

Áfram er dregið úr þjónustu á landsbyggðinni!

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður.
Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður.

Lilja Rafney Magnúsdóttir oddviti VG í Norðvesturkjördæmi skrifar

 

Íslandspóstur hf. ætlar að fækka dreifingardögum í dreifbýli í annan hvern dag og fækka landpóstum og er sú ákvörðun byggð á heimild í nýrri reglugerð innanríkisráðuneytisins. Ég tók þessi mál upp í fyrirspurnatíma Alþingis, þar sem innanríkisráðherra var til svara, og lýsti því yfir að mér þætti þetta vera aðför að dreifðum byggðum.

 

Ráðherra taldi að ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af þessum breytingum, þjónustan yrði til staðar áfram, gegn gjaldi „nota bene“, og þjónustukönnun sýndi að ekki væri almenn andstaða við sveigjanleika í dreifingu póstsins og póstsamskipti hefðu færst mikið yfir á netið.

 

Ég vil benda á, að aukin þjónusta og verslun á netinu nær ekki til allra dreifðra byggða og enn er langt í land að tryggð sé háhraðanettenging til allra landsmanna.

 

Mótmæli frá fulltrúum landsbyggðarinnar

 

Margar sveitarstjórnir í dreifbýli hafa eðlilega mótmælt þessum áformum harðlega og benda á, máli sínu til stuðnings, að þarna sé um afturför og veikingu á búsetuskilyrðum að ræða. Lítið samráð hefur verið haft við Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtökin í þessu máli og ýmsar athugasemdir hafa komið við það af þeirra hálfu.

 

Íbúar í dreifbýli hafa nú þegar mátt þola fækkun afgreiðslustöðva Póstsins á undanförnum árum, þrátt fyrir að þurfa að reiða sig á póstþjónustuna þar sem þeir eru fjarri fjölbreyttri þjónustu og markaðssvæðum. Þessi ákvörðun kemur líka ofan á ýmsa aðra þjónustuskerðingu af hálfu opinberra aðila og einkaaðila að undanförnu.

 

Góð fimm daga þjónusta Póstsins hefur skipt dreifðar byggðir miklu máli. Má þar m.a. nefna lyfjasendingar fyrir fólk og búfé og ýmiss konar birgða- og varahlutaþjónustu.

 

Enn einn landsbyggðarskatturinn

 

Íslandspóstur hf. talar um að póstinum verði að lágmarki dreift annan hvern dag og að í dreifbýli verði boðið upp á heimsendingu gegn greiðslu alla virka daga eftir því sem óskað verður eftir.

 

Sem sagt, enn einn landsbyggðarskatturinn á ferðinni, þar sem þjónustan verður verðlögð sérstaklega umfram dreifingu annan hvern dag. Með þessum áformum ætlar Pósturinn að spara um 200 m.kr. í boði veikustu byggðanna í landinu.

 

Af hverju gildir það þá ekki um alla landsmenn?

 

Ég hef sagt, að ef sú ákvörðun verður tekin af yfirvöldum að það sé ekki þörf fyrir dreifingu á pósti nema annan hvern dag, þá hljóti það að gilda jafnt um alla landsmenn. Mín skoðun er eftir sem áður sú, að Íslandspóstur hf. eigi áfram að halda uppi fimm daga góðri alþjónustu fyrir alla landsmenn. Ég bind vonir við að ákvörðun Íslandspósts hf. um skerðingu á þjónustu verði endurskoðuð og reglugerð innanríkisráðherra sem heimilar þessa þjónustuskerðingu verði dregin til baka.

 

Landsbyggðarþingmenn hljóta að standa saman gegn þessum áformum. Ég bind í það minnsta vonir við að samstaða náist um að allir landsmenn sitji við sama borð og njóti alþjónustu Íslandspósts hf. áfram fimm daga vikunnar.

 

– Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður VG í Norðvesturkjördæmi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31