Tenglar

Bátasafn Breiðafjarðar

1 af 3

Gamla samkomuhúsinu við Maríutröð
(við hliðina á Upplýsingamiðstöð ferðafólks)

Sími 434 7830
Netfang info@reykholar.is

 

Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum hefur síðustu árin dregið saman á þriðja tug gamalla báta úr Breiðafjarðareyjum og héruðum í kring og bjargað flestum þeirra frá eyðileggingu. Sumir eru varðveittir í misjöfnu ásigkomulagi eftir tímans tönn, gert er við aðra og enn aðrir eru endurbyggðir. Starfið er í fullum gangi og þess vegna er safnið lifandi vinnustaður ekki síður en sýningarstaður.

Upphafsmaður bátasafnsins var Aðalsteinn Aðalsteinsson, báta- og bryggjusmiður úr Hvallátrum á Breiðafirði.

Bátasafnið er í sama húsi og Upplýsingamiðstöð ferðafólks og Hlunnindasýningin á Reykhólum. Vegna þrengsla eru allmargir bátanna þó geymdir annars staðar.

Vefur Bátasafns Breiðafjarðar - skoðið ekki síst myndasíðurnar!

 

____________________________________________________________________________________________________

Atburðadagatal

« Aprl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30