Tenglar

8. janúar 2015 |

Áramótahugleiðing!

Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður skrifar

 

Árið 2014 var gjöfult ár fyrir Ísland frá náttúrunnar hendi, bæði til sjávar og sveita, og einnig streymdu ferðamenn til landsins sem aldrei fyrr. Ef við sætum ekki uppi með þessa „guðsvoluðu ríkisstjórn“ værum við sem þjóð í góðum málum og værum að komast út úr kreppunni, byggja upp innviði samfélagsins og auka jöfnuð í landinu. Við værum að læra af biturri reynslu af því sem orsakaði Hrunið og snúa af leið græðgi, misskiptingar og einkavæðingar sameiginlegra auðlinda.

 

En við erum þess í stað leidd aftur til slátrunar á altari Mammons, komin í sömu hringekjuna og við krössuðum í þegar Hrunið varð og vitum ekki hvar þessi ósköp enda. Nú þurfum við sem þjóð í upphafi nýs árs að hrista af okkur slenið og láta ekki teyma okkur á asnaeyrum út í fenið á ný. Við þurfum að losa okkur við þessa óláns ríkisstjórn sem fyrst, áður en henni tekst að eyðileggja velferðar- og menntakerfið og innviði samfélagsins meir en þegar er orðið, og koma hér á stjórn sem setur jöfnuð, réttlæti og sjálfbærni í forgang.

 

Ég er að boða byltingu! Því hún byrjar ávallt í hjarta og huga hvers og eins, og með samtakamætti getur þjóðin snúið af sér þá niðurrifsstefnu sem birtist í síðustu fjárlögum, þar sem þungar byrðar eru lagðar á þá sem minnst mega sín og hlaðið er undir valda- og fjármagnseigendur landsins.

 

Við stöndum á krossgötum sem þjóð. Við höfum öll tækifæri til að búa vel að öllum íbúum landsins, hvort sem þeir búa á Kópaskeri eða í Reykjavík, við höfum efni á að reka gott heilbrigðiskerfi, efla menntun, jafna kjör almennings óháð búsetu og bæta samgöngur og vernda náttúru landsins.

 

Núverandi stjórnvöld eru búin að sýna á spilin og þau eru að stefna í allt aðra átt með sinni grjóthörðu hægristefnu, þar sem ójöfnuður eykst og allt er falt fyrir peninga, hvort sem það er náttúra landsins eða fiskurinn í sjónum. Þjóðin er svo sannarlega búin að fá nasaþefinn af því fyrir hverja þessi ríkisstjórn er að vinna, og það er ekki almenningur í landinu sem er þar efstur á blaði, heldur auðvaldið.

 

Nú þurfum við að snúa bökum saman og losa þjóðina við þessa gæfulausu ríkisstjórn sem fyrst og koma hér á vinstri félagshyggjustjórn. Þegar það tekst, þá eigum við að geta horft fram á betri tíma fyrir alla, en ekki bara fyrir suma, eins og nú er.

 

Með góðri nýárskveðju.

- Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30