Biðin langa?
Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður skrifar
Þrátt fyrir fögur fyrirheit hefur fátt eitt gerst í skuldamálum heimilanna í landinu á þessu kjörtímabili. Milljarða stofnunum hefur að vísu verið komið á fót til þess að vinna að þessum málum. Árangurinn hefur hins vegar verið afskaplega rýr, þó kostnaður stofnananna hafi vaxið. Þær skuldir sem lækkað hafa hjá almenningi má að langmestu leyti rekja til dómanna um ólöglegu gengislánin og hafði ekkert með stjórnvaldsaðgerðir að gera.
Það harðnar því stöðugt á dalnum hjá sívaxandi hópi. Það fólk þolir enga bið. Það er langt síðan að fullreynt var að ríkisstjórnarflokkarnir myndu ekkert gera. Úr þeirri átt er einskis frekar að vænta. Það hefur legið fyrir lengi.
Nú er boðað að enn eigi skuldug heimili að bíða
Nú er það boðað að þennan vanda megi leysa með fjármunum sem ef til vill fáist með samningum við útlenda kröfuhafa í eignir gömlu bankanna. Það er gott og blessað. En hvenær? Hve mikið? Hvernig? Þessum spurningum getur enginn svarað.
Er þá svarið að skuldug heimilin í landinu eigi ennþá að bíða eftir úrræðum? Kannski í eittt ár, ef til vill tvö ár, allt eftir því hvernig samningaumleitanir gangi. Já. Það er einmitt hættan ef þetta á að verða úrræðið fyrir skuldug heimili í landinu.
Skuldug heimili hafa beðið í fjögur ár eftir úrræðum frá úrræðalausri ríkisstjórn. Það er bágt til þess að vita að enn sé boðuð bið eftir því að vandi heimilanna verði leystur.
Stefna sem hægt verður að framkvæma strax
Það er þess vegna svo gríðarlega nauðsynlegt að til staðar verði úrræði sem virka strax. Undir eins frá fyrsta degi eftir að lög hafa verið samþykkt á Alþingi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram slíkar tillögur sem munu lækka skuldir um 20% miðað við 20 milljóna lán og hóflegar fjölskyldutekjur. Þetta færi talsvert langt með að vinna niður forsendubrestinn sem varð með hruni fjármálakerfisins og hækkun verðbótanna.
Þetta er ekki ávísun á óljósar hugmyndir sem enginn getur fullyrt um hvenær geti orðið að veruleika. Þetta er vel ígrunduð stefna, útreiknað plagg, sem hægt verður að framkvæma tafarlaust.
- Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður.
Halldór Jóhannesson, laugardagur 20 aprl kl: 13:25
Einar Kristinn, hver er afrekalisti þin sem þingmaður Vestfirðinga síðan þú fórst fyrst á þing serm slíkur ?
Mér hefur sýnst þú vera fyrst og fremst þingmaður sjálfstæðisflokksins en ekki Vestfirðinga, og flokkurinn alltaf í fyrsta og öðru sæti en ekki kjördæmið.
Ég man vel þegar þú fórst fyrst á þing og lofaðir að leiðrétta kvótakerfið, en gerðir ekki neitt í því frekar en öðru.0