Tenglar

9. febrúar 2017 | Umsjón

Er friður í boði í viðsjálli veröld?

Lilja Rafney Magnúsdóttir, oddviti Vinstri grænna í NV-kjördæmi.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, oddviti Vinstri grænna í NV-kjördæmi.

Mér gafst kostur á að sækja friðarráðstefnuna World Summit 2017 í Seoul í Suður-Kóreu í byrjun þessa mánaðar. Yfirskrift hennar var Friður, öryggi og jöfnun lífskjara. Að ráðstefnunni stóðu alþjóðleg friðarsamtök og alþjóðlegt samband þingmanna fyrir friði. SunHak-friðarverðlaunin eru kennd við upphafsmenn þessara samtaka, sem voru hjónin dr. Sun Myung Moon og dr. Hak Ja Han Moon, eftirlifandi kona hans.

 

Margt má segja um mikla upphafningu þeirra hjóna á þeirra heimaslóðum í Suður-Kóreu, en eitt er víst, að friðarboðskapurinn einn og sér er vel þess virði að hafa verið meðal þátttakenda á þessum fjölmenna fundi ólíkra fulltrúa víðs vegar úr heiminum, sem komu saman til að hlusta á sjónarmið hver annars.

 

Markmiðið með ráðstefnunni er mjög gott. Það felur í sér samveru og samtal fulltrúa frá ólíkum þjóðum og menningarheimum, sem koma saman og leita leiða til að hindra stríðsátök og fátækt og einnig til að berjast saman fyrir bættum lífskjörum fátækra þjóða, aukinni menntun, jöfnuði og jafnrétti kynjanna.

 

Friðarverðlaunin í ár fengu tvær manneskjur sem hafa tileinkað líf sitt lækningum, hjálparstarfi og menntun á stríðshrjáðum svæðum. Það eru dr. Gino Strada, skurðlæknir frá Ítalíu, sem veitt hefur yfir fjórum milljónum íbúa og lækna neyðaraðstoð á stríðsátakasvæðum, og dr. Sakena Yacoobi, kennari og baráttukona, sem helgað hefur líf sitt réttindum og menntun barna og kvenna í Afganistan. Þegar ég hlustaði á ræður þeirra og kynningu á lífsstarfi þeirra veitti það manni trú á að mannkyninu sé viðbjargandi og að það góða sigri það illa að lokum.

 

Fjöldi framsögumanna hélt innihaldsríkar ræður þar sem ræddur var flóttamannavandinn og stríðsátökin sem ná ekki eyrum alþjóðafjölmiðla, fátæktin sem færist milli kynslóða, og bág staða kvenna og barna í mörgum löndum. Mér gafst kostur á að flytja ræðu um frið og um stöðu kvenna og jafnrétti á Íslandi, á kvöldverðarfundi þingkvenna sem byggja upp tengslanet um frið og stöðu kvenna og fjölskyldna í heiminum.

 

Margar magnaðar ræður voru fluttar, þar sem miklar tilfinningar brutust fram um ástandið í viðkomandi landi, eins og allar hörmungarnar í Sýrlandi, flóttamannabúðir í Líbíu og stjórnmálaástandið og átökin í Tyrklandi og Úkraínu, svo eitthvað sé nefnt. Eins var það áhrifaríkt þegar þingmaður Norður-Kóreu ávarpaði ráðstefnuna og kallaði eftir friði á milli Norður- og Suður-Kóreu og sagði að þau miklu mótmæli á götum úti gegn spillingu tengdri ríkisstjórn Suður-Kóreu hefði aldrei verið leyfð í sínu landi þar sem ekkert lýðræði ríkti.

 

Ástandið í heiminum er ekki friðvænlegt með stórhættulegan rugludall sem forseta í Bandaríkjunum, valdamesta ríki heims. Forseta sem er spilltur auðjöfur og vill reisa girðingar milli þjóða, mismuna á grundvelli trúarbragða, og haldinn er kvenfyrirlitningu. Nýjasta útspil Donalds J. Trump er komubann til Bandaríkjanna á íbúa sjö múslimaríkja, sem trúlega reynist stjórnarskrárbrot. Þar er kynt undir hatri á grundvelli kynþáttafordóma og trúarbragða og með því kynt undir stríðsátökum í heiminum.

 

Ekki má gleyma að minnast á stríðsátökin í hinum fátækari ríkjum Afríku, sem vilja oft gleymast, þar sem ekki eru undirliggjandi hagsmunir stórveldanna og auðlindir í fátækum ríkjum sem auðhringir hafa sölsað undir sig. Við hér heima á Íslandi erum svo lánsöm að vera herlaust land og friðsöm þjóð, þó sá ljóður sé á að vera ennþá í hernaðarbandalaginu Nató.

 

Vinstri græn, þar sem Steingrímur J. Sigfússon er fyrsti flutningsmaður, hafa lagt fram tillögu um kjarnorkufriðlýsingu norðurslóða. Mikilvægt er að við tökum þar skýlausa afstöðu og séum leiðandi í málefnum þeirra, en Ari Trausti Guðmundsson er formaður nefndar um norðurskautsmál.

 

Ísland á að vera leiðandi í allri friðarumræðu og gera sig gildandi á þeim vettvangi. Þó lítið land sé, þá getum við lagt okkar af mörkum til þess að stuðla að friðvænlegri heimi.

 

Það er horft til Íslands sem lýðræðisríkis sem hefur náð góðum árangri í mannréttindum og kvenfrelsi og sem velferðarsamfélag, þó alltaf megi sannarlega gera betur. Við eigum að láta í okkur heyra hvar sem er og hvenær sem er, til að leggja okkar af mörkum á vogarskál friðar í heiminum.

 

Lilja Rafney Magnúsdóttir,

alþingismaður.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31