Tenglar

28. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is

Fiskeldi í köldum strandsjó Íslands

Magnús Ólafs Hansson, verkefnastjóri Atvest á Patreksfirði.
Magnús Ólafs Hansson, verkefnastjóri Atvest á Patreksfirði.

 

Magnús Ólafs Hansson verkefnastjóri á Patreksfirði skrifar

 

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur ákveðið í samvinnu við Fiskeldisklasa Vestfjarða að efna til ráðstefnu um tækifæri og ógnanir í fiskeldi við strendur Íslands og verður hún haldin í Félagsheimili Patreksfjarðar dagana 3. og 4. október. Þekkt er að á Vestfjörðum eru mikil tækifæri til fiskeldis í sjó. Það er von okkar sem stöndum að þessari ráðstefnu að hún verði til að efla samstarf stjórnsýslu, rannsóknastofnana og fyrirtækja svo að þróun fiskeldis geti orðið farsæl hér eins og hjá nágrannaþjóðum okkar.

 

Margir þekktir fyrirlesarar munu sækja okkur heim og má þar nefna Per Gunnar Kvenseth, sem hefur víðtæka reynslu af rannsóknum og ráðgjafastörfum innan norsks fiskeldis. Per Gunnar er yfirmaður heilbrigðismála hjá fyrirtækinu Villa Organic, sem framleiðir vottaðan lax bæði í Suður-Noregi og á Austur-Finnmörk.

 

Meðal fyrirlesara verður einnig Cyr Couturier, sérfræðingur við sjávarútvegsstofnun háskólans í St. Johns, Memorial University. Cyr Couturier hefur unnið náið með samtökum fiskeldismanna á Nýfundnalandi sem og innan fiskeldis og skelræktar þar sem hann hefur m.a. verið formaður þeirra samtaka.

 

Fjöldi Íslendinga mun flytja fyrirlestra á ráðstefnunni. Meðal þeirra eru Héðinn Valdimarsson og Hafsteinn Guðfinnsson frá Hafrannsóknastofnun, Helgi Jensson frá Umhverfisstofnun, Gunnar Eydal frá Teiknistofunni Eik, Jón Örn Pálsson og Jónatan Þórðarson frá Fjarðalaxi og Shiran Þórisson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

 

Ráðstefnustjóri verður Þorgeir Pálsson.

 

Ætlunin er að gefa þeim sem þjónusta fiskeldisfyrirtæki kost á að kynna starfsemi sína á ráðstefnunni í sérstökum sýningarsal.

 

Ráðstefnan er öllum opin en staðfesta þarf þátttöku í síðasta lagi fyrir fimmtudaginn 19. september í síma 456 5006 eða í netfangið info@westfjordsadventures.com. Þar eru jafnframt veittar jafnframt allar upplýsingar um gistiaðstöðu og annan kostnað samfara ráðstefnunni.

 

Magnús Ólafs Hansson,

verkefnastjóri Atvest.

 

Hér má sjá dagskrána í einstökum atriðum (pdf)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30