Tenglar

21. apríl 2009 |

Frjálsar handfæraveiðar án afnáms byggðakvótans

Karl V. Matthíasson.
Karl V. Matthíasson.

Karl V. Matthíasson skrifar:

 

Steingrímur ætlar ekki að breyta kvótakerfinu, bara pínulítið, þegar hann er orðinn ráðherra í næstu ríkisstjórn. Það voru skilaboðin af fréttum í gær og framboðsfundinum í gærkvöld. Hann er kannske aftur farinn að hlusta á hagfræðinga kvótakerfisins. Hann ætlar þó að afnema byggðakvótann og láta handfærabáta veiða hann í „ólympískum" veiðum, þegar hann er orðinn ráðherra í næstu ríkisstjórn.

 

Byggðakvóti er til þess að hjálpa byggðarlögum sem verða fyrir miklu áfalli t.d. vegna þess að aðalútgerðarmaðurinn í plássinu seldi kvótann burt til að kaupa banka eða eitthvað sem engin fisklykt er af.

 

Ef þú afnemur byggðakvótann er farin sú eina núverandi vörn byggðanna sem til er í hinu rangláta kvótakerfi. Margir hafa talað um það að afnema eigi byggðakvótann, af því að það hafi verið svo mikil spilling í úthlutunum hans. Tek undir þetta með spillinguna.

 

Þó framkvæmdin hafi verið spilling er hægt að breyta úthlutuninni til byggðarlaganna. Fernt vinnst með því að leyfa byggðarlaginu, sem fær þennan „björgunarkvóta", að setja hann á markað gegn því að fiskinum sé landað þar og helst unninn. Jafnræðis er frekar gætt, fiskur landast á staðnum, fólk fær vinnu og byggðarlagið smáaur.

 

Ég tel rétt að afnema ekki byggðakvótann meðan við erum með þetta hrikalega rangláta kvótakerfi. Viðhöldum byggðakvótanum sem varnaraðgerð fyrir byggðirnar en leyfum frjálsar handfæraveiðar sem aukið úrræði til atvinnusóknar og stuðnings við fjölda fjölskyldna um allt land. Að fara þá leið að afnema byggðakvótann í stað þess að setja viðbótarstyrk fyrir byggðirnar með frjálsum handfæraveiðum veldur miklum vonbrigðum.

 

Frumvarpi Frjálslyndra um frjálsar handfæraveiðar er haldið föstu inni í sjávarútvegsnefnd af engum öðrum en Vinstri grænum, sem boða allt nýtt og betra. En bara eftir kosnignar þegar þeir eru orðnir ráðherrar að nýju. Það væri hægt að ganga í þetta mál núna, en hvað stoppar málið?

 

Stöndum saman.

 

- Kalli Matt.

 

Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31