Tenglar

3. mars 2009 |

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir gefur kost á sér í 2.-4. sæti í forvali VG í NV

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir

Fjölskyldan er ein af grunnstoðum samfélagsins og eru málefni hennar mér afar hugleikin. Miklir erfiðleikar eru nú framundan í íslensku samfélagi þar sem margir hafa misst atvinnu, skuldastaða heimila er slæm og mikil óvissa ríkir um framhaldið. Til að auka vellíðan og hag fjölskyldna í landinu tel ég mikilvægt að gera skattalagaumhverfið bæði auðveldara og gagnsærra. Eins og kerfið er í dag komast ýmsir aðilar upp með að greiða sér lágmarkslaun en taka síðan til sín stórar upphæðir í formi arðs. Ég tel það skyldu allra í landinu að borga sína skatta til samfélagsins sem síðan eru nýttir til góðra verka. Með gagnsæi skapast traust og skilningur en það er nokkuð sem virðist hafa farið halloka í umhverfi einstaklings- og gróðahyggju nútímans.

 

Menntamál eru mér ofarlega í huga og tel ég brýnt að standa vörð um enntastofnanir okkar. Það er hagur allra í landinu að búa að öflugu menntakerfi sem mun skila sér í þekkingarauði hjá komandi kynslóðum. Ég legg áherslu á að allir óháð búsetu og kjörum eigi þess kost að mennta sig og að einstaklingar hafi möguleika á að stunda nám í heimabyggð til 18 ára aldurs. Leggja þarf áherslu á iðnnám ekki síður en bóknám og efla sí- og endurmenntun.

 

Stoðir atvinnulífs Norðvesturkjördæmis eru landbúnaður og sjávarútvegur, þessar greinar þarf að standa vörð um. Mitt álit er að á þessum greinum sé hægt að byggja upp atvinnulífið á nýjan leik, auka þarf fjölbreytileika í atvinnulífinu sem má meðal annars gera með aukinni vinnslu afurða hvort sem það eru landbúnaðar- eða sjávarafurðir. Horfa mætti út fyrir landsteinana í leit að nýjum atvinnutækifærum sem hægt er að yfirfæra á íslenskar aðstæður.

Hugmyndir leynast víða og mikilvægt er að virkja þann kraft og hugmyndaauðgi sem býr á meðal fólksins í landinu við verðmætasköpun.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31