Tenglar

12. mars 2016 |

Hvalárvirkjun – mikil búbót fyrir Vestfirði

Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður Vinstri-grænna í NV-kjördæmi:

 

Það yrði mikil búbót fyrir Vestfirði að fá raforku frá Hvalárvirkjun inn á svæðið, en ef sú orka á að nýtast fyrir fjórðunginn og standa íbúum og fyrirtækjum þar til boða verður samhliða að koma á hringtengingu rafmagns á Vestfjörðum og endurnýjun flutningskerfisins á Vestfjörðum. Annars gagnast aukin orkuframleiðsla fjórðungnum lítið til eflingar atvinnulífs og öryggis í rafmagnsmálum.

 

Stjórnvöld verða því að leggja spilin á borðið strax og tryggja að þau muni koma að uppbyggingu tengivirkis í Inndjúpi og hringtengingu flutningskerfis, sem er forsenda þess að virkjunaráform við Hvalá í Ófeigsfirði, Austurgilsvirkjun og Skúfnavatnsvirkjun verði að veruleika og gagnist Vestfirðingum.

 

Kostir í raforkuframleiðslu á Vestfjörðum

 

Góður fundur var haldinn á Ísafirði nýlega um framtíðarhorfur í raforkumálum á Vestfjörðum, þar sem m.a. var fjallað um möguleika á framleiðslu orku á Vestfjörðum og áform Orkubús Vestfjarða og einkaaðila um að auka orkuframleiðslu á svæðinu og hugmyndir um nýjar virkjanaframkvæmdir. Þar eru efstar á blaði Hvalárvirkjun og virkjanir henni tengdar, ásamt fleiri kostum í Djúpinu sem einkaaðilar hafa hug á að virkja.

 

Það vekur athygli að opinberir aðilar sýna þessum virkjanakostum ekki áhuga. Orkubú Vestfjarða á 8 virkjanir sem gefa samtals 16 MW og 5 einkarafstöðvar skila 3,4 MW inn á raforkukerfið. Í því samhengi væri orka frá Hvalárvirkjun, Skúfnavatnsvirkjun og Austurgilsvirkjun upp á um það bil 50 MW gífurleg viðbót við orkuframleiðslu á Vestfjörðum.

 

Orkubú Vestfjarða stefnir að því að auka framleiðslugetuna á næstu árum með ýmsum hætti, t.a.m. með aukinni framleiðslu þeirra virkjana sem fyrir eru, og ætlar enn fremur í jarðhitaboranir í Súgandafirði og áformað er að auka hlut rafkyntrar hitaveitu á Ísafirði.

 

Óviðunandi staða varðandi afhendingaröryggi raforku

 

Mikið hefur vantað á það í fjölda ára að afhendingaröryggi rafmagns á Vestfjörðum væri viðunandi. Þar hefur í áraraðir skort raforku sem framleidd er á heimaslóð og því hefur mikið þurft að nota dísilknúðar rafstöðvar. Sú nýjasta, varaaflstöðin í Bolungarvík, getur afkastað 11 MW, sem eykur verulega öryggið.

 

Fyrirtæki á Vestfjörðum eru að kaupa skerðanlega orku eða ótryggt rafmagn af OV, sem kaupir það af Landsvirkjun. Nú boðar Landsvirkjun hækkun á verði á þeirri orku umfram vísitölu og vill helst hrista af sér kaupendur slíkrar orku. Við þær aðstæður er það álitlegur kostur að virkja þá orku sem er í nýtingarflokki á Vestfjörðum. Einkarafstöðvar eru líka góð búbót fyrir fjórðunginn.

 

Í sátt við náttúru og umhverfi

 

Vestfirðir hafa fengið umhverfisvottun og samþykktir hafa verið gerðar um að Vestfirðir verði stóriðjulausir. Öll ímynd svæðisins um hreinleika og sjálfbærni er verðmæt og mikilvæg öllum, en ekki síst atvinnugreinum á borð við matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu.

 

Brýnt að styðja við fullvinnslu afurða sem framleiddar eru á Vestfjörðum, þannig að kostir landshlutans fái notið sín sem best og laða þarf inn á svæðið umhverfisvæn fyrirtæki sem ekki eru orkufrek eða skaða ímynd Vestfjarða sem hins óspillta landsvæðis. Á Vestfjörðum eru iðnfyrirtæki sem skipta miklu fyrir búsetu þar, eins og Þörungavinnslan á Reykhólum og Kalkþörungavinnslan á Bíldudal, og í skoðun er kalkþörungavinnsla í Súðavík.

 

Það þarf að fjárfesta í innviðunum og grunngerðinni svo að Vestfirðir verði samkeppnishæfir um fólk og fyrirtæki og geti byggt sig upp í fiskeldi og sjávarútvegi ásamt hliðargreinum í sjávarútvegi, landbúnaði og ferðaþjónustu og öðrum skapandi greinum sem styðja við búsetu á Vestfjörðum.

 

– Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður Vinstri-grænna í NV-kjördæmi.

 

Athugasemdir

Andrés Hugo, sunnudagur 13 mars kl: 12:56

Mér líður ekki sérlega vel að lesa þetta. Hválárfossarnir er perla og hljóta að hafa míkill aðdráttarafl fyrir framtíðarferðamenn. Væri ekki nær að endurskoða rafmagnssamninga til álvera og deila það í kjölfarið sanngjarnara ýfir landið ?

Vestfirðingur, mnudagur 18 aprl kl: 23:07

Gott svo langt sem það nær, en bætir ekkert fyrir sunnanverða vestfirði.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31