Tenglar

3. janúar 2009 |

Hvert erum við að stefna?

Dr. Þorleifur Ágústsson, lífeðlisfræðingur á Ísafirði.
Dr. Þorleifur Ágústsson, lífeðlisfræðingur á Ísafirði.

Dr. Þorleifur Ágústsson lífeðlisfræðingur,
verkefnastjóri hjá Matís á Ísafirði:

 

Mér fannst ánægjulegt að sjá frétt um skynsamlegar rannsóknir sem verið er að stunda á Tálknafirði. Þar er verið að rannsaka hvort ekki sé gott að ala saman bláskel og þorsk. Þetta er að vísu ekkert nýtt. Sameldi eða fjöleldi hefur verið stundað víða um heim í einhverjum mæli - og með ýmsum tegundum. Ég hef átt samtöl og umræður við fjölda vísindamanna um þessi mál - bæði evrópska og vestanhafs. Við höfum jafnvel gerst svo djarfir nafnarnir - ég og Þorleifur Eiríksson hjá Náttúrustofu Vestfjarða, að skrifa umsóknir - já, fleiri en eina - til að þess að reyna að afla peninga til slíkra rannsókna. Rannsókna sem skilgreina mikilvægi og möguleika á að nota eina tegund (bláskel) til að minnka lífræna mengun frá þorskeldiskvíum.

 

En ávallt hefur þessum umsóknum verið hafnað - ekki talin vera þörf á umhverfisrannsóknum á Íslandi. Að slíkar rannsóknir auki ekki verðmæti íslensks sjávarfangs.

 

Þvert ofan í mat erlendra sérfræðinga sem þó hafa verið meðhöfundar á slíkum umsóknum. En nei - umhverfismálin eru bara eitthvað sem engu skilar. Því miður.

 

Og manni hefur liðið eins og Don Kíkóta sem barðist við vindmyllur.

 

Ég hef því oft spurt mig þeirrar spurningar - hví erum við Íslendingar svona áhugalausir um umhverfismál - um það að nýta náttúruna á sem næst því sjálfbæran hátt?

 

Ósjaldan hef ég rætt þessi mál við ráðamenn - þingmenn - þá sem eitthvað geta gert í málinu. Allir er sammála um ágæti þessa. En enginn gerir nokkurn skapaðan hlut. Við erum ennþá í sömu sporum og við vorum fyrir mörgum árum hvað þetta varðar.

 

En hvert ætlum við að stefna á eldi - í nýtingu sjávar og náttúru?

 

Hvert eigum við að stefna?

 

Er ekki tíminn núna - tíminn til að sýna ábyrgð og hafa framtíðarsýn sem við getum verið stolt af - bera ábyrgð á auðlindum okkar og framtíð!?

 

_______________________________________

 

Pistill þessi birtist á bloggsíðu Þorleifs Ágústssonar 2. janúar 2009.

 

Hlutafélagið Matís ohf. tók til starfa 1. janúar 2007. Í fyrirtækinu sameinuðust þrjár ríkisstofnanir sem unnið höfðu að matvælarannsóknum og þróun í tengslum við matvælaiðnað. Þetta voru Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti og Rannsóknastofa Umhverfisstofnunar. Starfsstöðvar Matís eru í Reykjavík, á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Neskaupstað, Höfn í Hornafirði og Vestmannaeyjum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31