Tenglar

5. apríl 2011 |

Leið B takk – núna

Þórólfur Halldórsson.
Þórólfur Halldórsson.
Þórólfur Halldórsson skrifar vegna greinar Ólínu Þorvarðardóttur alþm. á vefnum bb.is á Ísafirði 4. apríl 2011.

 

Allar götur frá því fyrir árið 2000 hafa sveitarstjórnarmenn og íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum sem einn maður barist fyrir vegabótum á Vestfjarðavegi nr. 60 milli Bjarkalundar og Flókalundar. Fram að þessu hefur hið pólitíska litróf engu skipt. Það er því miður ef þetta gríðarlega hagsmunamál er nú að færast í flokkspólitísk hjólför.

 

Hvað varðar veginn um Gufudalssveit er vert að minna á að fyrsta óskin var sú að farin yrði svokölluð leið A, sem þveraði Þorskafjörð frá Stað á Reykjanesi yfir að Skálanesi. Vegagerðin taldi þá leið óforsvaranlega kostnaðarsama og fjárveitingavaldið var ekki reiðubúið að standa straum af henni. Þá hófst baráttan fyrir því að leið B yrði einn þeirra kosta sem færu í mat á umhverfisáhrifum, sem var ekki ætlun Vegagerðarinnar í upphafi, þrátt fyrir að leið B væri eini valkosturinn sem gerði ráð fyrir því að leggja láglendisveg.

 

Í þessari baráttu vannst sigur og leið B var tekin inn í umhverfismatið. Jarðgöng voru aldrei inni í myndinni sem raunverulegur valkostur. Vegagerðin benti á að takmarkaðar fjárveitingar til jarðgangagerðar og líkleg forgangsröðun samkvæmt jarðgangaáætlun gerði það að verkum að við yrðum að reikna með að bíða í 30-50 ár eftir að röðin kæmi að jarðgöngum í Gufudalssveit.

 

Ein röksemdin fyrir því að leið B færi í umhverfismatið var sú að í gildandi svæðisskipulagi fyrir Reykhólahrepp og Dalasýslu var gert ráð fyrir því að framtíðarlega Vestfjarðavegar væri samkvæmt leið B. Aðalskipulag Reykhólahrepps 2006-2018, sem staðfest var af umhverfisráðherra 24.9.2009, gerir einnig ráð fyrir leið B sem vegstæði Vestfjarðarvegar. Það skýtur því skökku við að alþingismaður í Norðvesturkjördæmi skuli nú kjósa að tali máli sérhagsmuna aðstandenda eyðibýlanna Grafar og Hallsteinsness gegn leið B sem fer um hlaðið hjá þeim, og gera lítið úr áralangri baráttu íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum.

 

Alþingismaðurinn vitnar til „trúverðugra útreikninga sem henni vitanlega hafa ekki verið véfengdir“ um leiðir G og HG, sem eru reyndar bara hugarfóstur reiknimeistarans. Til upplýsingar skal greint frá því að undirritaður mótmælti þessum útreikningum þegar þeir komu fram. Útreikningarnir eru gerðir af málsaðila sem tengist eyðibýlinu Gröf, og látið í veðri vaka að þeir séu gerðir að beiðni félagasamtaka sem svo vill til að hann sjálfur er virkur meðlimur í. Þarna er kostnaður við jarðgöng reiknaður niður annars vegar með því að taka dæmi um einbreið jarðgöng og hins vegar með því að stytta göngin með því að færa gangamunna hátt upp í hlíðar.

 

Í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar, 2. tbl. frá 2007, er komist að þeirri niðurstöðu, að jarðgangaleiðin sé um 6 km styttri en um 3 milljörðum kr. dýrari en vegur á þeirri leið sem nú hefur verið ákveðin („leið B“). Það er of mikill munur til að hægt sé að taka jarðgöng með sem raunhæfan valkost. Ef einungis er miðað við göng undir Hjallaháls en ekki Gufudalsháls og vegurinn færi áfram út fyrir Skálanes væri jarðgangaleiðin 3 km lengri og 2 milljörðum kr. dýrari en vegur á „leið B“.

 

Það vekur furðu að alþingismaðurinn gefi í skyn að Hæstiréttur hafi hafnað vegagerð um Teigsskóg. Þvert á móti staðfesti Hæstiréttur bæði að að rannsókn á umhverfisáhrifum á gróðursamfélag og fornminjar á landsvæðinu hafi verið fullnægjandi, og sama átti raunar við um þveranir Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Dómurinn stendur því ekki í vegi fyrir vegagerð samkvæmt leið B.

 

Í einfeldni minni sé ég ekkert siðferðilega athugavert við það að samgönguyfirvöld knýi fram eindreginn vilja íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum um að leggja Vestfjarðaveg samkvæmt leið B og með þeim skilyrðum sem umhverfisráðherra ákvað í úrskurði sínum 5. janúar 2007.

 

Það verður svo bara að hafa það, hvað sem Hæstiréttur segir, að leið B stórauki umferðaröryggi á Vestfjarðavegi í Gufudalssveit. Leyfum íbúum á sunnanverðum Vestfjörðum nú einu sinni að „njóta vafans“.

 

- Þórólfur Halldórsson var um árabil sýslumaður Barðstrendinga með aðsetur á Patreksfirði.

 

Athugasemdir

Gunnlaugur Pétursson, rijudagur 05 aprl kl: 16:50

Ég geri ráð fyrir að Þórólfur eigi við mig, þegar hann talar um "málsaðila sem tengist eyðibýlinu Gröf". Ég vil nú gjarnan leiðrétta ýmislegt, m.a. eftirfarandi:

Útreikningar mínir, eins og þeir birtust á heimasíðu Landverndar í janúar 2007, hafa ekki verið véfengdir í mín eyru, nema liðurinn "kostnaður vegna niðurfellingar náma", sem þegar er búið að leiðrétta fyrir löngu löngu síðan. Þessa útreikninga lét ég Samgöngunefnd Alþingis hafa í lok nóvember 2010 og innanríkisráðherra í lok mars 2011, uppfærða til desember 2009. Ég veit ekki hvað það er sem Þórólfur telur ekki standast í þessum útreikningum, enda er í öllum tilvikum sagt frá því hvernig tölurnar eru fengnar eða reiknaðar. Í útreikningunum eru BÆÐI reiknuð út tvíbreið og einbreið jarðgöng, ekki bara einbreið. Þetta sést glögglega ef menn skoða útreikningana.

Fyrst minnst er hæð á göngum undir Hjallaháls, þá er bara ekkert að göngum í 110-120 m hæð. Ýmis göng hér á landi er í meiri hæð en þetta og þykir það ekkert tiltökumál.

Þessa úreikninga gerði ég ekki að beiðni ónefndra félagasamtaka, heldur voru þeir upphaflega innlegg í athugasemdir við umhverfismatsskýrsluna og voru þeir sendir til Skipulagsstofnunar í desember 2005. Síðan uppfærði ég útreikningana fyrir grein í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar (nr.4, 2007) og tók þá saman fyrir Landvernd og fleiri, á sama hátt og ég hef uppfært þá annað slagið alveg til desember 2009. Þar að auki liggja nú fyrir útreikningar á verðmæti birkis í Teigsskógi sem færi undir leið B. Sá kostnaður bætist við kostnað við leið B og er hann umtalsverður.

Þórólfur telur leið B stórauka umfeðaröryggi á Vestfjarðavegi. Það virðist því miður vera tálsýn eða óskhyggja. Þessir hlutir voru skoðaðir alveg sérstaklega í aðdraganda málflutnings í Hæstarétti, en þá lágu þegar fyrir upplýsingar um óhappatíðni á Hjallahálsi frá 1996-2008, þar sem sést að hún er talsvert undir meðallagi miðað við Vestfjarðaveg 60 í heild (og það jafnvel áður en búið er breikka veginn um Hjallaháls og laga og taka af beygjur eins og Vegagerðin ætlar að gera). Einnig lá fyrir nýleg skýrsla frá Eflu um óhöpp vegna langhalla á Vestfjarðavegi öllum og nokkur fleiri gögn.

Í þessu sambandi er líka fróðlegt að líta í nýlega skýrslu FÍB um umferðaröryggi vega (stjörnumerkingu vega) hér á landi 2010, en þá skýrslu má m.a. finna á vef Vegagerðarinnar. Ég hvet menn til að skoða þar hvaða einkunn núverandi vegir í Gufudalssveit fá.

Bestu kveðjur
Gunnlaugur Pétursson

Þórólfur Halldórsson, mivikudagur 06 aprl kl: 09:52

Í athugasemdum segir Gunnlaugur: „Þessa úreikninga gerði ég ekki að beiðni ónefndra félagasamtaka, heldur....“
Heimildin sem alþingismaðurinn vísar til um útreikningana er bréf sem Gunnlaugur Pétursson skrifaði Fuglavernd, Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Náttúruvaktinni þann 25. janúar 2007. Bréfið hefst með orðunum: „Að beiðni yðar hef ég tekið saman upplýsingar um kostnað við leið B .....“

Gunnlaugur Pétursson, mnudagur 25 aprl kl: 16:00

Sæll Þórólfur

Ég gerði ekki þessa útreikninga að beiðni félagasamtaka, heldur tók ég saman það sem ég var þegar búinn að gera í heildstæðan pakka, eins og þar stendur skýrt og greinilega. En hefði ég ekki verið búinn að reikna þetta út og setja í athugasemdir við matsskýrsluna, hefði ég meira en fúslega reiknað þetta allt frá grunni fyrir umrædd samtök.... - Kveðja, Gunnlaugur Pétursson

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30