Tenglar

15. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is

Makríll 2013 og tækjakaup

Finnbogi Vikar.
Finnbogi Vikar.

Finnbogi Vikar skrifar:

 

Vonandi verður fljótlega gefinn út kvóti í makríl fyrir árið 2013 af Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvegaráðherra. Þá er ekki úr vegi að minna á, að það er almennur vilji til þess að jafnræðis verði gætt við úthlutun veiðiheimilda, ekki fáir útvaldir fái ríkulegan arð af þessari syndandi auðlind í lögsögu Íslands.

 

Fé frá uppboði makrílaflaheimilda til tækjakaupa

 

Þess vegna vil ég beina því til Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra og ríkisstjórnar VG og Samfylkingarinnar, að gæta jafnræðis við úthlutun veiðiheimilda í makríl og slá tvær flugur í einu höggi. Það má afla peninga til tækjakaupa fyrir Landspítalann og heilbrigðisstofnanir um land allt, sem ríkið hefur ekki lokað vegna fjárskorts, með því að bjóða upp aflaheimildir í makríl á almennum og opnum uppboðsmarkaði fyrir útgerðaraðila, fiskvinnslur og almenning og skilyrða tekjur uppboðsins fyrir veiðiheimildir í makríl 2013 til tækjakaupa á Landspítalanum og heilbrigðisstofnanir um land allt. Þannig mætti fá hugsanlega milljarða til tækjakaupa og jafnræðis gætt við úthlutun veiðiheimilda í makríl 2013.

 

Aflinn seldur á fiskmarkaði – rétt markaðsverð fyrir sjómenn

 

Skylda ætti síðan að selja allan aflann á opnum innlendum fiskmarkaði þar sem allir hagsmunaaðilar í vinnslu og sölu makríls gætu boðið í aflann, hvort sem er ferskan eða frosinn, unninn eða óunninn við löndun. Það er til að tryggja gegnsæi í sölu aflans og sjómönnum markaðsverð og réttmætan aflahlut í samræmi við raunverulegt aflaverðmæti skipa og báta er stunda makrílveiðar.

 

7 milljarðar ef færeyska leiðin yrði innleidd

 

Verðmætin út úr þessari fjáröflunarleið fyrir Landspítalann eru gríðarlega mikil. Færeyingar buðu t.d. upp hluta af makrílkvóta sínum hjá Fiskmarkaði Færeyja og með heimild í færeyskum lögum „nr. 74 frá 6. juni 2011 um serstakar treytir fyri makrelfiskiskapi í 2011“. Færeysk stjórnvöld fengu um 1 milljarð íslenskra króna fyrir 20 þúsund tonn af makríl. Ef íslensk stjórnvöld myndu bjóða upp íslenska makrílkvótann myndi það þýða miðað við forsendur úr færeyska uppboðinu rúmlega 7 milljarða króna fyrir 142 þúsund tonna makrílkvóta Íslendinga.

 

5 milljarða gjöf til útgerðarmanna í uppsjávarveiði makríls

 

Samanlagt almennt og sérstakt veiðigjaldið af makríl mun aðeins skila tæpum 2 milljörðum króna án tillits til lækkunarheimilda samkvæmt lögum um veiðigjöld. Þarna munar meira en 5 milljörðum króna sem er verið að gefa útgerðarfyrirtækjunum miðað við uppboðin hjá frændum okkar Færeyingum. Það er óskiljanlegt að íslenskt stjórnvöld og ríkisstjórn Samfylkingar og VG hafi ekki farið sömu leið og færeysk stjórnvöld. Nýtum makrílinn til að bæta tækjakost Landspítalans og heilbrigðisstofnana um land allt með því að halda uppboð á íslenska makrílkvótanum árið 2013.

 

Þessu er hér með beint til Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra og ríkisstjórnarflokkanna, VG og Samfylkingarinnar.

 

Virðingarfyllst.

Finnbogi Vikar, viðskiptalögfræðingur.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30