Opið bréf til sveitarstjórnar Reykhólahrepps
Virðulega sveitarstjórn!
Vogaland er eina samkomuhúsið í hreppnum, að frátöldum kirkjum. Eina húsið þar sem hægt er að setja upp leikrit og hentar til alls þess sem félagsheimilum er ætlað.
Fyrir nokkrum árum komu tvö kauptilboð í Vogaland, ekki langt frá þremur milljónum. Ég barðist mjög á móti sölu, bæði af tilfinningalegum hvötum og líka af hagrænum ástæðum: Við þyrftum að eiga húsið og auk þess væri það margfalt meira virði.
Þeim tilboðum var hafnað, þóttu of lág, og ákveðið að auglýsa eftir tilboðum, sem aldrei var svo gert.
Það kom eins og köld vatnsgusa framan í mig þegar mér var sagt nýlega, að Vogaland væri selt og á eina milljón króna.
Sveitarstjóri staðfesti svo við mig með söluna en ég spurði ekki um verðið.
Enga fann ég bókun um söluna í fundargerðum hreppsnefndar, hvorki samþykkt fyrir því að selja ætti Vogaland né heldur fyrir gerðum hlut.
Nú vantar mig skýringar: Hvers vegna selja Vogaland án auglýsingar? Hvers vegna selja Vogaland án samþykktar hreppsnefndar (lögbrot)? Hvers vegna þennan feluleik?
Með vinsemd og virðingu.
Guðjón D. Gunnarsson, Reykhólum.