Tenglar

3. nóvember 2009 |

Stefnumótun í ferðaþjónustu á Vestfjörðum

Ásgerður Þorleifsdóttir.
Ásgerður Þorleifsdóttir.
Ásgerður Þorleifsdóttir verkefnastjóri hjá Atvest skrifar:

 

Eftir mikla fjölgun ferðamanna sl. ár stendur ferðaþjónustan á Vestfjörðum nú á tímamótum. Því er nauðsynlegt fyrir ferðaþjónustuna að staldra við, meta árangur síðustu ára og setja sér traust markmið fyrir framtíðina. Hafa Ferðamálasamtök Vestfjarða (FMSV) því ákveðið að ráðast í gerð heildstæðrar stefnumótunar fyrir greinina til næstu fimm ára, með það að markmiði að treysta innviði greinarinnar og hlúa þannig að ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Með öflugri ferðaþjónustu með skýra framtíðarsýn eflum við efnahag og samfélagið á Vestfjörðum til framtíðar.

 

Ferðaþjónustu á Íslandi og Vestfjörðum hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og er mikilvægi hennar að aukast hratt í vestfirsku samfélagi. Ætla má að vægi ferðaþjónustunnar í umfangi atvinnulífisins á Vestfjörðum sé í kringum 7,5% og má áætla að vöxturinn bara sl. ár sé hátt í 30%.

 

Á allra næstu vikum og mánuðum munu Ferðamálasamtök Vestfjarða standa fyrir vinnufundum með ferðaþjónustuaðilum og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu um alla Vestfirði. Markmiðið með fundunum er að virkja hagsmunaaðila í ferðaþjónustu til að leggja sitt af mörkum til að meta stöðu ferðaþjónustu á Vestfjörðum og taka þátt í að móta framtíðarsýn hennar. Fundirnir eru öllum opnir og eru kjörið tækifæri til að hafa áhrif á framtíð ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

 

Fyrir stefnumótuninni standa Ferðamálasamtök Vestfjarða, en samtökin eru grasrótarhreyfing í ferðaþjónustu um alla Vestfirði. Ferðamálasamtökin njóta stuðnings Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, Markaðsstofu Vestfjarða og Menningarráðs Vestfjarða við framkvæmd vinnufundanna og úrvinnslu þeirra. Stefnumótunarvinnan er fjármögnuð af Ferðamálasamtökunum og samstarfsaðilum ásamt Vaxtarsamningi Vestfjarða.

 

Vinnufundirnir samanstanda af stuttum kynningum um stöðu ferðaþjónustunar á Íslandi og á Vestfjörðum, en meginefni fundanna eru vinnuhópar þar sem þátttakendum gefst kostur á að hafa áhrif í litlum hópum þar sem unnið er að afmörkuðum málefnum ferðaþjónustunnar. Boðið er upp á léttar hressingar meðan á fundinum stendur.

 

Fundarherferðin hefst í Bjarkalundi þann 7. nóvember. Dagskráin er annars sem hér segir:

 

       7. nóvember: Bjarkalundur kl. 13-16.

       9. nóvember: Sjóræningjahúsið á Patreksfirði kl. 18-21.

      11. nóvember: Þróunarsetrið á Ísafirði kl. 18-21.

 

FMSV leggur áherslu á víðtæka samvinnu og samstarf stoðgreina ferðaþjónustunnar, ferðaþjónustufyrirtækja, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila í þessari vinnu sem framundan er. Með samstilltu átaki og skýrri framtíðarsýn getur ferðaþjónustan á Vestfjörðum haldið áfram að vaxa og dafna öllum Vestfirðingum til heilla.

 

Nánari upplýsingar um stefnumótunarvinnuna og vinnufundina er að fá hjá Ásgerði í síma 450 3053 og Jóni Páli í síma 450 4041.

 

- Ásgerður Þorleifsdóttir,

verkefnastjóri ferðamála og menningarklasa hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða.

 

Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30