Tenglar

20. nóvember 2009 |

Verða Vestfirðir paradís náttúrulauga?

Viktoría Rán Ólafsdóttir.
Viktoría Rán Ólafsdóttir.
Viktoría Rán Ólafsdóttir verkefnisstjóri skrifar:

 

Vestfirðir einkennast af fjölda heitra náttúrulauga og hafa forsvarsmenn þeirra sameinast um að nýta þær á sjálfbæran hátt og að Vestfirðir verði til fyrirmyndar á landsvísu hvað varðar uppbyggingu á heilsutengdri ferðaþjónustu. Hópurinn kallar sig Vatnavini Vestfjarða og samanstendur af landeigendum, ferðaþjónum, arkitektum og öðrum áhugamönnum sem sameinast í því að þróa vestfirskt aðdráttarafl tengt vatni.

 

Vatnavinir Vestfjarða ætla að flagga vestfirskum náttúruauðlindum og leyfa ferðamanninum að upplifa þannig náttúruperlur og menningu svæðisins í gegnum náttúrulaugar og vellíðunarþjónustu sem hópurinn mun þróa næstu árin.

 

Þema hópsins er heitt og kalt vatn. Sjór, vatn og jarðvarmi hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem njóta þess að slaka á í heitum laugum og ferðast um í leit að nýrri og ógleymanlegri upplifun.

 

Markmið verkefnisins er að þróa náttúruvæna ferðaþjónustu og gera náttúruauðlindir okkar Vestfirðinga sýnilegri. Í verkefninu er áhersla lögð á að framkvæmdir í kringum heilsulindir, baðstaði og náttúrulaugar séu vandaðar og vel skipulagðar. Reynt verður að ljúka nauðsynlegustu framkvæmdum fyrir næsta sumar á útvöldum stöðum, sem allar falla að langtíma framtíðarsýn heilsutengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

 

Verkefnið er fjórskipt eftir svæðum. Mikilvægt er að hlúa að séreinkennum hvers svæðis fyrir sig. Í markaðssetningu verður áhersla lögð á sérstöðu hvers svæðis og stuðlað að því að ferðamenn vilji heimsækja öll svæðin. Um er að ræða fyrstu skrefin til frekari uppbyggingar á næstu árum með áherslu á fjölgun ferðamanna á þeim baðstöðum sem þegar eru til en hafa fram að þessu lítið verið kynntir innanlands og erlendis.

 

Vatnavinir Vestfjarða ætla ekki aðeins að hvetja fólk til að að nýta náttúrulaugarnar á Vestfjörðum heldur ætlar hópurinn að þróa hágæða heilsuferðaþjónustu með framtíðarsýn um uppbygging stærri heilsulinda á 1-2 stöðum og verður grunnur lagður að þeirri þróunarvinnu með verkefninu. Um er að ræða langtímaverkefni sem mun krefjast þolinmæði, fjármagns og viljafestu margra til að verða að veruleika.

 

Vinnufundur Vatnavina Vestfjarða. Fyrr í vikunni stóðu Vatnavinir í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða fyrir fjölmennu vinnuþingi sem haldið var að Laugarhóli í Bjarnarfirði. Vatnavinir kynntu frumlegar skissur og grunnhugmyndavinnu hönnuða á 11 náttúruböðum víðs vegar á Vestfjörðum, stöðu þeirra í dag og möguleikum til framtíðar.

 

Mörg áhugaverð erindi voru flutt á þinginu, m.a. um lækningarmátt þara og vatns, samnýtingu náttúrubaða við aðra ferðaþjónustu, eiginleika vatns á Vestfjörðum og mikilvægi óhefðbundinna lækninga við uppbyggingu á heilsutengdri ferðaþjónustu. Vatnavinir kynntu opnun heimasíðunnar vatnavinir.is ásamt öðru markaðssetningarefni. Á þinginu var rætt um verkefnið frá ýmsum hliðum og endað á því að móta sameiginlega framtíð þessa viðamikla klasaverkefnis.

 

Fjölmargir sóttu vinnuþingið, Vatnavinir víðs vegar að, staðarhaldarar á baðstöðum, aðrir ferðaþjónar, fyrirlesarar og gestir. Einn fyrirlesaranna, Hermann Ottósson forstöðumaður fræðslu- og ráðgjafarsviðs hjá Útflutningsráði, segir mikla grunnvinnu hafa átt sér stað sem muni nýtast verkefninu vel og er ánægður með árangur þingsins og þátttöku Vestfirðinga.

 

- Viktoría Rán Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Vatnavina Vestfjarða og Atvest.

 

Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30