Ylströnd við Þörungaverksmiðjuna
Ritgerð Elínborgar Egilsdóttur, sem hlaut 1.-2. sæti
í samkeppni Landsbyggðarvina í Reykjavík og nágrenni
um hugmyndir til góðs fyrir heimabyggðina
Við verksmiðjuna er lítill fallegur vogur og með litlum kostnaði mætti hlaða vegg sem myndi afmarka eða loka voginum betur og veita heitu affallsvatni úr Þörungaverksmiðjunni, sem nú rennur beint í sjóinn, í voginn. Þá væri komin þarna náttúruleg ylströnd þar sem ferðamenn og þorpsbúar gætu baðað sig. En við myndum ekki einungis nota heita vatnið heldur líka sjóinn sem heita vatnið rennur út í. Ég er enginn arkitekt, en ég veit að þetta er hægt. Með þessu væri komin ákaflega falleg og náttúruleg sundlaug. Með einstaklega fallegu útsýni allt í kring. Ég held að þetta sé það sem ferðamenn leitast eftir að finna á Íslandi.
Ofanritað er kafli úr ritgerð Elínborgar.
Hér má lesa verkefnið í heild á pdf-formi.
Ingijbörg Guðjónsdóttir, sunnudagur 11 mars kl: 23:15
Hlutstum á ungafólkið okkar sem hefur margar frábærar hugmyndir. Heita vatnið okkar ættum við að nota betur til að skapa einstaka baðstaði út um allt land. Þetta er frábær hugmynd hjá þér og svona ylströnd ætti að vera hægt að byggja upp í norkkrum þrepum án mikils tilkostanaðar en þó þannig að þjónusta sé selt eins og aðgangur að búningsklefum , kaffi og ís.... og það sem gæti gefið sveitafélaginu tekjur og fólki störf í sveitafélaginu.
Reykhólar eru sannarlega einn af þeim stöðum á landinu sem gæti þróað sig heilmikið í ferðþjónustu, eitt af leyndarmálum Íslands :)