Tenglar

fimmtudagur 31. mars 2011 |

Ari Arnalds (Ari Jónsson, tók sér ættarnafnið Arnalds)

F. á Hjöllum í Gufudalssveit 7. júní 1872, d. 14. apríl 1957. For.: Jón Finnsson (f. 2. maí 1830, d. 28. des. 1917) bóndi þar og k. h. Sigríður Jónsdóttir (f. 29. ágúst 1831, d. 27. sept 1914) húsmóðir. Afi Ragnars Arnalds alþm. og ráðherra. K. (10. okt. 1908) Matthildur Einarsdóttir Kvaran (f. 29. sept. 1889, d. 27. jan. 1980). Þau skildu. For.: Einar H. Kvaran, bróðir Sigurðar H. Kvarans alþm., og 2. k. h. Gíslína Kvaran. Synir: Sigurður (1909), Einar (1911), Þorsteinn (1915).

 

Stúdentspróf Lsk. 1898. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1905.

 

Blaðamaður við dagblaðið Verdens Gang í Ósló 1904-1905. Settur vorið 1906 og fram á sumar sýslumaður í Norður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðisfirði. Yfirréttarmálaflutningsmaður í Reykjavík 1907-1914. Aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu 1909-1910, starfsmaður í veðdeild Landsbanka Íslands 1910-1914. Sýslumaður í Húnavatnssýslu 1914-1918, sýslumaður í Norður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðsfirði 1918-1937. Starfsmaður í endurskoðunardeild fjármálaráðuneytisins 1941-1947.

 

Lögfræðilegur ráðunautur útibús Útvegsbanka Íslands á Seyðisfirði 1937-1941. Stofnandi og meðstjórnandi Síldarbræðslunnar hf. á Seyðisfirði og jafnframt lögfræðilegur ráðunautur fyrirtækisins 1937-1941. Skip. 1938 sáttasemjari í vinnudeilum í Austurlandsumdæmi. Umboðsmaður Búnaðarbanka Íslands á Austurlandi og umboðsmaður eftirlitsmanns sveitarstjórnarmálefna þar 1939-1941. Í bankaráði Íslandsbanka 1909-1915.

 

Alþm. Strand. 1908-1911 (Sjálfstfl. eldri (Landvfl.)).

 

Samdi nokkrar bækur byggðar á eigin minningum.

Ritstjóri: Dagfari (1906). Ingólfur (1907-1908).

 
- Alþingismannatal.
  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31