Tenglar

sunnudagur 3. apríl 2011 |

Guðmundur Einarsson úr Skáleyjum

F. í Skáleyjum 25. (kb. 27.) mars 1816, d. 31. okt. 1882. For.: Einar Ólafsson (f. um 1760, d. 17. júlí 1843) bóndi þar og k. h. Ástríður Guðmundsdóttir (f. um 1771, d. 3. des. 1865) húsmóðir. Tengdafaðir Skúla Thoroddsens alþm. K. (3. nóv. 1843) Katrín Ólafsdóttir Sívertsen (f. 3. júní 1823, d. 9. júní 1903) húsmóðir. For.: Ólafur Sívertsen alþm. og k. h. Jóhanna Friðrika Eyjólfsdóttir. Systir Eiríks Ó. Kúlds alþm. Börn: Ólafur (1844), Þórhildur (1845), Ástríður (1846), Ástríður (1847), Ólafur (1849), Jóhanna Friðrika (1850), Rögnvaldur (1851), Hildiþór (1852), Einar (1854), Daníel (1855), Ásthildur Jóhanna (1857), Theodora (1860), Ólafur Sívertsen (1861), Theodora Friðrika (1863), Eiríkur Kúld (1866).

 

Stúdentspróf Bessastöðum 1838.

 

Skrifari og kennari hjá Eiríki Sverrissyni sýslumanni í Kollabæ í Fljótshlíð. Vígðist 1842 aðstoðarprestur Ólafs Sívertsens í Flatey, sat í Skáleyjum og gegndi Múlasókn á Skálmarnesi. Fékk Kvennabrekku 1848, Breiðabólstað á Skógarströnd 1868 og hélt til æviloka. Prófastur í Dalaprófastsdæmi 1864-1869.

 

Alþm. Dal. 1852-1858 og 1869-1882 (endurkjörinn 1858, en kom ekki til þings á kjörtímabilinu). Þjóðfundarmaður 1851.

 
- Alþingismannatal.
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31