Tenglar

sunnudagur 3. apríl 2011 |

Ólafur Sívertsen í Flatey

F. á Núpi í Haukadal í Dalasýslu 24. maí 1790, d. 27. maí 1860. For.: Sigurður Sigurðsson (f. 1763, d. 11. maí 1826) síðar bóndi á Fjarðarhorni í Hrútafirði og k. h. Katrín Þorvaldsdóttir (f. 1766, d. 26. jan. 1819) húsmóðir. Bróðir Þorvalds Sívertsens alþm., faðir Eiríks Kúlds alþm. og Katrínar konu Guðmundar Einarssonar alþm. K. (6. okt. 1821) Jóhanna Friðrika Eyjólfsdóttir (f. 31. maí 1798, d. 23. ágúst 1865) húsmóðir. For.: Eyjólfur Kolbeinsson og k. h. Anna María Pétursdóttir Kúld. Börn: Eiríkur Kúld (1822), Katrín (1823), Eggert Theodór (1829).

 

Stúdent 1816 úr heimaskóla hjá Páli Hjálmarssyni presti á Stað á Reykjanesi.

 

Var í þjónustu Guðmundar Schevings kaupmanns í Flatey og síðan í þjónustu Eiríks Kúlds kaupmanns. Hóf búskap í Flatey vorið 1821. Prestur í Flatey 1823-1860. Prófastur 1840-1860.

 

Stofnaði Framfarafélag Flateyjar á giftingardegi sínum 1821. Hann fékkst við lækningar.

 

Alþm. Barð. 1852-1860.

 

- Alþingismannatal.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31