Tenglar

17. febrúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Nelson var í næsta stól

Skjáskot úr þættinum.
Skjáskot úr þættinum.

Jóni Atla Játvarðarsyni frá Miðjanesi verða oft vísur eða kviðlingar á munni í tilefni dægurmála í samfélaginu. Hann horfði á þáttinn Sunnudagsmorgun í sjónvarpinu í gær. Þar ræddi stjórnandinn við forsætisráðherra en hafði viðstaddan sér til öryggis Gunnar á Hlíðarenda, nema það hafi verið Nelson flotaforingi. Jón Atli kvað:

 

Gísli fram öll tók sín tól

og taldist nokkuð virkur.

Nelson var í næsta stól

og nægur orðinn styrkur.

 

Gísli Marteinn geisar inn,

gott er að hann batni,

meðan klæðlaus keisarinn

kemur upp úr vatni.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« J�n� 2025 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30