Síða 1 af 2
Myndasyrpur - smellið á fyrstu mynd / Reykhólahreppur 25 ára
Á 25 ára afmæli Reykhólahrepps hins nýja, 4. júlí 2012, efndi sveitarstjórn til grillveislu í Hvanngarðabrekku (Kvenfélagsgirðingunni) á Reykhólum. Hreppurinn í sinni núverandi mynd varð til við sameiningu allra hreppanna fimm í Austur-Barðastrandarsýslu þennan dag árið 1987. Veðrið í grillveislunni var svo sem venjulegt sumarveður á Reykhólum, glaðasólskin og hægviðri og um fimmtán stiga hiti - sumsé blíða eins og best verður á kosið á Íslandi. Þessar myndir tóku Ingibjörg Birna Erlingsdóttir og Sveinn Ragnarsson.