28. ágúst 2018 | Sveinn Ragnarsson
100 ára afmælisfagnaður UDN 1. sept.
UDN varð 100 ára 24. maí síðastliðinn og ætlum við að halda upp á afmælið í Dalabúð 1.september kl 14:00.
Verður boðið upp á veitingar og margt verður til sýnis eins og búningar, ljósmyndir frá mótum, gamlir bikarar og fleira.
Við verðum með hoppukastala fyrir krakkana ef veður leyfir.
Mikið af góðu fólki hefur hjálpað sínum félögum og UDN að halda uppi flottu íþróttastarfi og hvetjum við ykkur að mæta því þetta er ykkar afmæli.
UDN hefði ekki starfað í 100 ár nema fyrir dugnað fólksins sem lagði hönd á plóg.
Kær kveðja
Stjórn UDN