11. febrúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
112-dagurinn til kynningar á neyðarnúmerinu
Tilgangurinn með 112-deginum í dag, 11. febrúar (11.2.) er að kynna neyðarnúmerið 112 og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Að þessu sinni er áherslan lögð á getu almennings til þess að bregðast við á vettvangi alvarlegra slysa og veikinda, að fólk hringi í 112 og veiti fyrstu aðstoð áður en sérhæfð aðstoð berst.112-dagurinn er haldinn víða um Evrópu í dag en 112 er samræmt neyðarnúmer í löndum Evrópusambandsins.
► Á vef Neyðarlínunnar er að finna margvíslegar upplýsingar um starf hennar. Þar er líka tengill á einfalt netpróf í skyndihjálp.