Tenglar

25. apríl 2009 |

144 af 206 kusu í Reykhólahreppi eða 69,9%

Kjörstjórnin að starfi í Bjarkalundi: Halldór (Venni), Steinunn og Arnór.
Kjörstjórnin að starfi í Bjarkalundi: Halldór (Venni), Steinunn og Arnór.

Í Reykhólahreppi var kosið í einni kjördeild í Bjarkalundi. 139 manns greiddu atkvæði á kjörstað. Þangað bárust einnig 5 atkvæði sem áður höfðu verið greidd utan kjörfundar hjá sýslumanni á skrifstofu Reykhólahrepps. Þannig kusu alls 144 í Reykhólahreppi eða 69,9% af þeim 206 sem voru á kjörskrá. Þetta segir þó ekki alla söguna vegna þess að eflaust höfðu einhverjir kosið utan kjörfundar annars staðar og þau atkvæði farið beint til yfirkjörstjórnar í kjördæminu.

 

Allt gekk vel á kjördag og engin vandamál komu upp, að sögn Halldórs D. Gunnarssonar, formanns kjörstjórnar í Reykhólahreppi. Undir lok kjörfundar kom lögreglan til að flytja atkvæðin suður í Borgarnes þar sem talning í NV-kjördæmi fer fram.

 

Á myndinni er kjörstjórnin í Reykhólahreppi að störfum í morgun. Hana skipa, auk Halldórs, þau Steinunn Rasmus og Arnór Grímsson.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31