28. nóvember 2022 | Sveinn Ragnarsson
1. skóflustunga að nýju raðhúsi á Reykhólum
Kl. 11:30 á morgun þriðjudag verður tekin fyrsta skóflustungan að byggingu fjögurra íbúða raðhúss hér á Reykhólum.
Raðhúsið verður staðsett að Hellisbraut 58 – 64, þar sem núverandi byggð við Hellisbraut endar.
Það er byggingafyrirtækið Landsbyggðarhús ehf. sem mun byggja húsið.
Kaupandi hússins er Leigufélagið Bríet ehf. Reykhólahreppur er hluthafi í Bríeti síðan 1. júlí s.l.
Landbyggðarhús bjóða uppá veitingar á Reykhólar Café á eftir. Allir velkomnir sem hafa tök á því að koma og fylgjast með og fagna.
Hér má sjá samskonar raðhús og verður byggt á Reykhólum, nema 5 íbúða.