11. apríl 2017 | Sveinn Ragnarsson
200 páskaegg týnd!!!
Einhversstaðar þarna gætu eggin verið
Þann 15. apríl - laugardaginn fyrir páska - kl. 13:00 verður páskaeggjaleit í skógræktinni á Barmahlíð. Öllum í Reykhólahreppi og gestum er boðið að koma þangað og leita að þessum 200 páskaeggjum sem eru týnd í skóginum.
Enginn nammigrís má láta sig vanta, hittumst öll í páskastuði!