Tenglar

6. apríl 2017 | Sveinn Ragnarsson

2 auglýsingar frá Félagsþjónustunni

 

Vilt þú gerast persónulegur talsmaður fatlaðs einstaklings?

Námskeið á næstunni.

Einstaklingur, sem vegna fötlunar á erfitt með að gæta hagsmuna sinna, á rétt á að velja persónulegan talsmann sér til aðstoðar. Um ólaunað starf er að ræða, en tilfallandi kostnaður er greiddur.

Meðal skilyrða sem þarf að uppfylla til þess að gerast persónulegur talsmaður er að sækja fræðslu um innihald og áherslur í starfinu.

 

Námskeið fyrir áhugasama á næstunni á vegum réttindavaktar velferðarráðuneytisins:

Laugardaginn 22. apríl – Akureyri. Síðasti skráningardagur 12. apríl nk.

Laugardaginn 29. apríl – Reykjavík. Síðasti skráningardagur 15. apríl nk.

Skráning og frekari upplýsingar hjá réttindagæslumanni á hverju svæði.


Sumarstarf

Starfsmaður óskast til að halda sumarnámskeið fyrir fatlað barn á Reykhólum í sumar. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og reynslu af að annast fötluð börn.

Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest eða samkvæmt samningi Stéttarfélags viðkomandi starfsmanns.

 

Umsóknir berist til Maríu Játvarðardótur félagsmálastjóra sem einnig veitir frekari upplýsingar síma 842-2511 eða á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is. Umsóknarfrestur er til 20. apríl. 

 


Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31