Tenglar

10. júní 2012 |

33 verkefnastyrkir frá Menningarráði Vestfjarða

Björgun skipbrotsmanna úr togaranum Sargon undir Hafnarmúla við Örlygshöfn. Mynd: Þjóðminjasafnið.
Björgun skipbrotsmanna úr togaranum Sargon undir Hafnarmúla við Örlygshöfn. Mynd: Þjóðminjasafnið.

Menningarráð Vestfjarða hefur lokið yfirferð styrkumsókna vegna úthlutunar ráðsins á verkefnastyrkjum árið 2012. Ákvörðun um framlög til einstakra menningarverkefna liggur fyrir eins og fram kemur hér fyrir neðan. Langhæsta styrkinn að þessu sinni fékk verkefni Minjasafnsins á Hnjóti í Örlygshöfn við sunnanverðan Patreksfjörð, sem ber heitið Björgunarafrekið við Látrabjarg. Arnarsetur Íslands í Króksfjarðarnesi fékk 700 þúsund króna styrk og Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum 350 þúsund króna styrk.

 

Úthlutanir ráðsins byggjast á reglum sem samþykktar eru fyrir hverja úthlutun. Að þessu sinni eru veitt framlög til 33 verkefna, samtals að upphæð 19.130.000. Áður hefur Menningarráð Vestfjarða úthlutað 11,4 milljónum í stofn- og rekstrarstyrki á þessu ári (sjá næstu frétt hér á undan) en þeir eru nýmæli og veittir á öðrum forsendum.

 

Verkefnastyrkirnir eru á bilinu 90 þúsund til 1,5 milljón. Alls bárust 107 umsóknir og eins og venjulega var í þeim hópi mikill fjöldi góðra umsókna og spennandi verkefna, segir í tilkynningu.

 

Menningarráðið þakkar kærlega fyrir allar umsóknir sem bárust og óskar umsækjendum öllum velfarnaðar í verkefnum sínum. Næst verður auglýst eftir umsóknum nálægt næstu áramótum.

 

Eftirtalin verkefni fengu verkefnastyrki frá Menningarráði Vestfjarða að þessu sinni (umsækjandi innan sviga):

 

 

Kr. 1.500.000

  • Björgunarafrekið við Látrabjarg (Minjasafnið á Hnjóti)

 

Kr. 1.000.000

  • Starf og viðburðir í Menningarmiðstöðinni Edinborg árið 2012 (Menningarmiðstöðin Edinborg)
  • Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda 2012 (Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda)
  • Act alone 2012 (Act alone)
  • Þjóðleikur á Vestfjörðum (Þjóðleikur)

 

Kr. 800.000

  • Hrafna-Flóki söngleikur (Vestfirska skemmtifélagið)
  • Pönk á Patró, tónlistarhátíð fyrir börn og með börnum (Pönk á Patró – Tónlistarhátíð)
  • Sálin hans Muggs míns (Kómedíuleikhúsið)
  • Galdrastafir (Ragnar Ingi Hrafnkelsson & Smári Gunnarsson)
  • Sögulegar vestfirskar stuttmyndir (Gláma)

 

Kr. 700.000

  • Arnarsetur Íslands - sýning (Össusetur Íslands ehf.)
  • Hvalabeinin úr Skrúð og hvalveiðar á Vestfjörðum (Framkvæmdasjóður Skrúðs)

 

Kr. 690.000

  • Krummi á alla kanta (Náttúrugripasafn Bolungarvíkur)

 

Kr. 600.000

  • List á Vestfjörðum 2012 (Félag vestfirskra listamanna)
  • Grunnsýning um Stein Steinarr í Steinshúsi (Sögumiðlun ehf.)
  • Vestfirsk ljósmyndabók (Eyþór Jóvinsson)
  • Frásagnasafnið – lokaáfangi (Þjóðfræðistofa)
  • Rauðasandur Festival (Rauðasandur Festival)

 

Kr. 500.000

  • Flókatóftir (Vesturbyggð)
  • Listamaðurinn með barnshjartað - leiksýning (Kómedíuleikhúsið)
  • Safn sem hýsir sögu kvennamenningar og lista (Kvenfélagið Ósk)
  • Hagleiksmaðurinn Þorsteinn Magnússon og aðrar sérsýningar Sauðfjárseturs á afmælisári þess (Sauðfjársetur á Ströndum ses.)

 

Kr. 400.000

  • One Scene (Fjölnir Már Baldursson)
  • Sýning um skinnklæði (Sandra Borg Bjarnadóttir)

 

Kr. 350.000

  • Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum - viðbætur (Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum ehf.)

 

Kr. 300.000

  • Tónlist frá ýmsum hliðum (Fræðslumiðstöð Vestfjarða)

 

Kr. 250.000

  • Strandastelpa - frá Yangjiang norður í Trékyllisvík (Ingibjörg Valgeirsdóttir)

 

Kr. 200.000

  • Harpa og Ragna: Arnarfjörður (Markús Þór Andrésson)
  • Einstök sýning - Sigurlaug Jónasdóttir (Gíslastaðir)

 

Kr. 150.000

  • Allir eitt - ljósmyndasýning (Hótel Laugarhóll)

 

Kr. 100.000

  • Götulistanámskeið á Ísafirði (Lisbet Harðard. Ólafardóttir)
  • Líf og list Þórdísar Egilsdóttur (Sigrún Gunnarsdóttir)

 

Kr. 90.000

  • Dansi dansi dúkkan mín (Jósefína Guðrún Gísladóttir)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31