28. desember 2012 |
40 m/sek meðalvindhraði á Klettshálsi?
Ekki rættust um daginn spár um ógurlegra frost á Norðausturlandi en þekkst hefur á Íslandi. Nú er að sjá hvort sú spá rætist betur, að meðalvindhraði á Klettshálsi verði fjörutíu metrar á sekúndu klukkan sex í fyrramálið. Ef svo færi, þá væri vindur í hviðum langtum meiri.
Bergsveinn G Reynisson, fstudagur 28 desember kl: 13:45
Ég held að þetta sé það hvassasta sem hefur verið spáð hér um slóðir, eftir að spár fóru að verða svona aðgengilegar á netinu. (Að vísu segir Trausti Jónsson að veðurminni hjá "elstu mönnum" sé 2 1/2 ár). Gott að það er ekki mikill snjór til að skafa.