4 lóðir auglýstar til úthlutunar á Reykhólum
Reykhólahreppur auglýsir til úthlutunar fjórar lóðir á Reykhólum.
Um er að ræða fjórar lóðir sem allar eru á skilgreindri íbúðarhúsabyggð á Reykhólum skv. gildandi aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018. Um lóðirnar gildir deiliskipulag í þéttbýli á Reykhólum sem samþykkt var 15. desember 2014 og skipulag eldri byggðar frá 1970 teiknað af Fjarhitun.
Umræddar lóðir eru eftirfarandi:
1. Reykjabraut 6, leigulóð, 1014 m2 stærð, landnr. 180402. Á lóðinni má byggja allt að 120m2 hús á einni hæð, auk 20m2 geymslu, allt skv. sérskilmálum í deiliskipulagi.
2. Hellisbraut 40, leigulóð, 997 m2 stærð, landnr. 227536. Á lóðinni má byggja allt að 120m2 hús á einni hæð, auk 20m2 geymslu, allt skv. sérskilmálum í deiliskipulagi.
3. Hellisbraut 46, leigulóð, 899 m2 stærð, landnr. 227537. Á lóðinni má byggja allt að 120m2 hús á einni hæð, auk 20m2 geymslu, allt skv. sérskilmálum í deiliskipulagi.
4. Hellisbraut 54, leigulóð, 953 m2 stærð, landnr. 227538 Á lóðinni má byggja allt að 120m2 hús á einni hæð, auk 20m2 geymslu, allt skv. sérskilmálum í deiliskipulagi.
Til að umsókn teljist gild skulu umsækjendur greiða kr. 20.000 í staðfestingargjald og þá skulu þeir jafnframt leggja fram skriflega staðfestingu frá banka eða lánastofnun um greiðsluhæfi og/eða möguleika á lánafyrirgreiðslu vegna fyrirhugaðrar húsbyggingar. Skal í staðfestingunni koma fram að umsækjandi geti fjármagnað 100% kostnaðar fyrirhugaðrar húsbyggingar.
Deiliskipulag þéttbýlis á Reykhólum, úthlutunarskilmálar og umsóknareyðublað er aðgengilegt á vef sveitarfélagsins www.reykholar.is. Sjá einnig reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda. Umsókn skal senda á Stjórnsýsluhús Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppi, eða á netfangið sveitarstjori@reykholar.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2018.