6,5 millj. kr. aukaframlag vegna Reykhólahrepps
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið að verja allt að 100 milljónum króna úr fjárveitingu byggðaáætlunar til að styrkja sérstaklega uppbyggingu ljósleiðarakerfis í strjálbýlum sveitarfélögum.
Þessi fjárveiting kemur til viðbótar úthlutun Fjarskiptasjóðs til verkefnisins Ísland ljóstengt 2017.
Tilkynnt var um þetta í dag.
Þetta er gert í þeim tilgangi að gera strjálbýlum sveitarfélögum hægara um vik að hefja ljósleiðarauppbyggingu, segir á vef innanríkisráðuneytisins.
Nítján sveitarfélög eiga kost á þessum fjármunum á árinu 2017 og nema upphæðir styrkja frá einni milljón króna upp í liðlega tólf milljónir. Framlag til verkefnisins í Reykhólahreppi er það fimmta hæsta, eða sex og hálf milljón króna (sjá töfluna á myndinni).
Sjá hér tilkynningu á vef innanríkisráðuneytisins í heild.
(varðar verkefnið Ísland ljóstengt 2017 - Reykhólavefurinn 14. janúar 2017)