Tenglar

17. nóvember 2009 |

89 umsóknir við síðari úthlutun Menningarráðs í ár

Stjórn Menningarráðs Vestfjarða vinnur nú við að fara yfir og afgreiða styrkumsóknir sem bárust vegna seinni úthlutunar ráðsins á árinu 2009. Alls bárust 89 umsóknir um styrki að þessu sinni, jafnmargar og við fyrri úthlutun ársins í vor. Beðið er um framlög að upphæð tæplega 75 milljónir króna til fjölbreyttra menningarverkefna, en heildarsamtala í fjárhagsáætlunum verkefnanna hljóðar upp á 436 milljónir. Það er því ljóst að það er mikill hugur í Vestfirðingum á menningarsviðinu og mörg verkefnin eru býsna viðamikil þótt vissulega séu þau af öllum stærðum og gerðum. Til ráðstöfunar eru 18,5 milljónir að þessu sinni.

 

Úthlutun vilyrða fyrir styrkjum fer fram nálægt næstu mánaðamótum en þeir eru síðan að venju greiddir út í samræmi við framvindu verkefna. Menningarráð Vestfjarða styrkir aldrei verkefni um meira en 50% af fjárhagsáætlun eða kostnaðaryfirliti að verki loknu, þannig að áhrifin af styrkjunum eiga að vera mun meiri en upphæð þeirra segir til um. Frá upphafi hefur Menningarráðið lagt sérstaka áherslu á að stuðla að nýsköpun, gæðaþróun, samvinnu og fjölgun skapandi starfa í menningargeiranum á Vestfjörðum, segir á vef ráðsins.

 

Vefur Menningarráðs Vestfjarða

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31