Tenglar

30. nóvember 2010 |

90 uppskriftir að hætti kvenna í Reykhólahreppi

Kvenfélagið Katla í Reykhólahreppi er um þessar mundir að selja matreiðslubók. Í bókinni er að finna 90 uppskriftir að ýmiskonar kræsingum frá kvenfélagskonum. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér má finna tvö sýnishorn af uppskriftum í bókinni.

 

 

Mexíkósk kjúklingasúpa

 

2 kjúklingabringur

salt

hálfur blaðlaukur, smátt saxaður

1 rauð paprika, smátt söxuð

1 msk ólífuolía

1 lítri vatn

1 kjúklingateningur

1 dós saxaðir tómatar

4 msk chilisósa

3 msk tómatþykkni (tomato paste)

100 g rjómaostur

Nachos-flögur

rifinn ostur

 

Aðferð:

Byrjaðu á því að steikja kjúklingabringurnar í ofni eða á pönnu þar til þær eru eldaðar í gegn og skerðu þær svo í bita. Steiktu blaðlaukinn og paprikuna í ólífuolíunni við hægan hita. Hitaðu vatnið í öðrum potti og leystu kjúklingateninginn upp í vatninu. Bættu grænmetinu út í kjúklingasoðið.

 

Matarmikil kjúklingasúpa er notalegur kvöldverður og vel til þess fallinn að ylja kroppnum í kuldanum. Hún er ekki síðri þegar hún er hituð upp og svo er líka sniðugt að nota afgang af kjúklingi í súpuna.

 

 

Orio-eftirréttur

 

1 bolli flórsykur

250 g rjómaostur

1 pakki vanillubúðingur

250 ml mjólk

1 tappi vanilludropar

250 ml þeyttur rjómi

16-20 Orio-kexkökur

 

Aðferð:

Þeyta á flórsykur og rjómaost saman. Því næst er búðingsdufti, mjólk og dropum bætt út í og þeytt saman. Í lokin er þeyttum rjóma bætt út í með sleif. Kexkökurnar eru muldar mjög smátt (gott að setja í matvinnsluvél). Kexið og hræran eru svo sett lagskipt í skál.

 

Athugasemdir

Fanney Inga Halldórsdóttir, fimmtudagur 02 desember kl: 12:22

Mig langar rosalega mikið í þessa bók, hvar er hægt að nálgast hana.

kolfinna Ýr, fimmtudagur 02 desember kl: 15:54

Sæl

Bókina og þá líka dagatalið úr hreppnum er hægt að fá í Hólakaup og svo hjá stjórn Kvenfélagsins. Netfangið þeirra er: K.Katla@visir.is.


Kveðja Kolfinna

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31