Tenglar

8. febrúar 2013 | vefstjori@reykholar.is

Á Reykhólum fyrir sextíu árum og einu betur

Á Reykhólum snemma árs 1952.
Á Reykhólum snemma árs 1952.

Myndin sem hér fylgir er úr fórum Steinunnar Erlu Magnúsdóttur á Kinnarstöðum í Reykhólasveit. Hún er tekin snemma árs 1952 fyrir utan sundlaugarhúsið á Reykhólum, sem á þeim tíma var jafnframt skólahús héraðsins. Á morgun verður myndin sett inn á undirsíðuna Ljósmyndir, myndasöfn - Gamlar myndir (valmyndin vinstra megin) ásamt nöfnum allra þeirra sem þarna getur að líta. Þangað til geta áhugasamir spreytt sig á því að þekkja mannskapinn.

 

Auk þess að stækka myndina eins og venjulega með því að smella á hana má sækja hana mun stærri með því að smella hér.

 

Laugardagur: Upplýsingarnar komnar á sinn stað.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31