Tenglar

22. október 2013 | vefstjori@reykholar.is

Á hvaða jörðum er skotveiði bönnuð?

Rjúpnaveiðitíminn þetta árið hefst á föstudag. Að þessu sinni verða veiðidagar alls tólf talsins, þrír í senn (föstudagur, laugardagur og sunnudagur) fjórar helgar í röð. Undanfarin ár hefur rjúpnaveiði og önnur skotveiði verið bönnuð á allmörgum jörðum í Reykhólahreppi eins og kynnt hefur verið hér á vefnum hverju sinni. Á síðasta ári var óskað eftir því að tilkynnt væri um bann við skotveiði á landareignum 16 jarða hér á Reykhólavefnum.

 

Núna hefur fyrsta óskin um slíkt borist varðandi það veiðitímabil sem er að ganga í garð en þar er um að ræða jörðina Gröf í Þorskafirði.

 

Hér er til fróðleiks tengill á listann um bann við skotveiði sem birtur var hér á vefnum í fyrra. Líklegt má telja að hann muni einnig gilda a.m.k. í stórum dráttum að þessu sinni þó að ekki sé hægt að fullyrða neitt um það hér. Eigendur og umráðamenn jarða sem vilja koma þeim á bannlista hér á vefnum eru beðnir um að senda póst þess efnis í netfangið vefstjori@reykholar.is.

 

Skotveiðimenn eru minntir á að kynna sér landamerki áður en haldið er til veiða. Auk þess skal á það minnt, að vitaskuld er óheimilt er að veiða án leyfis í landareignum annarra þó að bann við slíku hafi ekki verið tilkynnt.

 

Sjá einnig:

24.10.2013 Veiðimenn kynni sér hvar lönd jarða liggja

 

Uppfært:

Landareignir eftirtalinna jarða eru komnar á bannlista 2013 (bætt er við í stafrófsröðina um leið og það berst):

  • Berufjörður
  • Bær í Króksfirði
  • Gillastaðir
  • Gröf í Þorskafirði
  • Hafrafell 3
  • Hyrningsstaðir
  • Kinnarstaðir
  • Múli í Þorskafirði
  • Skáldstaðir
  • Skógar
  • Þórisstaðir

 

Ástþór Ágústsson í Múla í Ísafirði (innst í Ísafjarðardjúpi) biður um að á nýjan leik verði vakin athygli á því sem hann sendi til birtingar hér á vefnum í fyrra varðandi Kollafjarðarheiði. Það sé enn í fullu gildi. Þar segir hann: 

  • Á undanförnum árum hefur borið á því að veiðimenn komi upp á Kollafjarðarheiði úr Kollafirði og séu að skjóta á heiðinni og víðar án leyfis. Meðal annars hefur orðið vart við veiðimenn í landi Múla í Ísafirði sem er þó í allnokkurri fjarlægð frá vegslóðanum á heiðinni. Mér datt í hug hvort þú gætir sett á listann að þeir veiðimenn sem ætla sér á Kollafjarðarheiði kynni sér hvar lönd jarða liggja og veiði aðeins þar sem leyfi liggur fyrir.

 

Athugasemdir

Guðmundur S. Ingimarsson, mivikudagur 23 oktber kl: 10:28

Fyrir þá sem eru óöruggir um hvar þeir mega veiða mætti t.d benda á kort yfir úrskurði í þjóðlendumálum. Þó er ekki búið að úrskurða á vestfjörðum.
http://obyggdanefnd.is/wp-content/uploads/2012/09/Thjodlendukort_1-7_mars2013.pdf

Það er annars ámælisvert í þessu tæknivædda landi að heildstætt kort yfir landamerki sé ekki til.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31