15. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is
Á sömu slóðum sama dag - en gerólíkar myndir
Þórarinn Ólafsson í Stekkjarlundi var á ferðinni nokkuð löngu á undan Sveini Ragnarssyni á leið sinni frá Reykhólum á sunnudag. Dimmbláu myndirnar sem Sveinn tók í kyrru kvöldhúmi og hér voru birtar í fyrradag hafa vakið mikla athygli. Hér koma myndir sem Þórarinn tók á svipuðum slóðum um fyrr um daginn. Sama blíðalognið og sama útsýnið í austur og suðaustur - en myndirnar nánast eins og teknar í svarthvítu eða þá að þetta séu kolteikningar. Þó eru þetta litmyndir.
► Dauðakyrrð í kvöldhúmi við Berufjörð