22. febrúar 2021 | Sveinn Ragnarsson
Ábending til hundaeigenda á Reykhólum
Einhver brögð eru að því að eigendur hunda þrífi ekki upp eftir þá þegar hundarnir gera stykki sín úti við á Reykhólum.
Það eru vinsamleg tilmæli að hundaeigendur kippi þessu í lag, það er frekar leiðinlegt að ganga fram á hundaskít á alfaraleið.