Tenglar

15. desember 2015 |

Að fræða um getu þessa hóps, skoðanir og langanir

Kunnugleg andlit úr þáttunum / RÚV.
Kunnugleg andlit úr þáttunum / RÚV.

Félagsmálaráðherra hefur veitt milljónastyrk til gerðar sjónvarpsefnis í þáttaröðinni Með okkar augum. Þættirnir eru liður í vitundarvakningu um stöðu fatlaðs fólks og hafa þegar skapað sér sess í sjónvarpsstofum landsmanna, því að alls hafa verið framleiddir 30 þættir sem sýndir hafa verið á RÚV. Þættirnir hafa notið vinsælda og meðal annars verið tilnefndir þrisvar til Eddu-verðlaunanna.

 

Þetta kemur fram á vef velferðarráðuneytisins. Þar segir einnig:

 

Sérstaða þáttanna er sú, að fólk með þroskahömlun er beggja vegna linsunnar, sér um dagskrárgerð, tökur, kynningar og fleira, en nýtur aðstoðar fagfólks.

 

Markmið þáttanna er að breyta ímynd fólks með þroskahömlun og fræða almenning um getu þessa hóps, skoðanir og langanir. Líta má svo á að gerð sjónvarpsþáttanna sé jafnframt liður í því að uppfylla skyldur samkvæmt 8. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks um að stuðla að vitundarvakningu um stöðu þess og auka virðingu fyrir réttindum þess og mannlegri reisn.

 

Óhætt er að fullyrða að þeir þættir sem gerðir hafa verið hafa vakið mikla athygli og jákvæð viðbrögð og stuðlað að bættri ímynd og sjálfsmynd fatlaðs fólks og dregið úr fordómum gagnvart því.

 

Athugasemdir

Hlynur Þór Magnússon, rijudagur 15 desember kl: 19:29

Hér skiptir að mínum dómi sjálf fjárhæðin ekki mestu, heldur viðurkenningin, uppörvunin, móralski stuðningurinn, sem í þessum fjárstuðningi felst.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31