Tenglar

12. júlí 2016 |

Að upplifa og læra með því að sjá og snerta ...

Myndir: Náttúrubarnaskólinn.
Myndir: Náttúrubarnaskólinn.
1 af 5

Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir margvíslegum skemmtilegum viðburðum á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum í sumar. Námskeiðum fyrir náttúrubörn á öllum aldri, kvöldgöngum, fuglafjöri, spurningakeppnum, sagnaskemmtunum og mörgu fleira. Á svæðinu kringum Sævang er fuglalífið ótrúlega fjölbreytt og fuglarnir orðnir vanir mannaferðum. Hægt er að klappa æðarkollunni Kollfríði þar sem hún liggur á hreiðri sínu. Teistur verpa í manngerða kassa þar sem hægt er að fylgjast með teistum og ungunum þegar þeir koma úr eggjunum, en þeir halda til í kössunum í mánuð.

 

Þetta kemur fram í pósti frá Dagrúnu Ósk Jónsdóttur, nýútskrifuðum þjóðfræðingi og „yfirnáttúrubarni“ hjá Náttúrubarnaskólanum. Þar segir einnig:

 

Í Náttúrubarnaskólanum er líka bruggað jurtaseyði, sent flöskuskeyti, litað með jurtalitum og sagðar draugasögur í sagnahúsinu sem stendur niðri í fjöru, en í því er líka að finna eina plastdýragarðinn á Íslandi. Börn vita ansi margt um náttúruna og það er gaman að vera með þeim á námskeiðunum þar sem vettvangurinn er ævintýraheimar fjörunnar.

 

Annars snýst Náttúrubarnaskólinn helst um að skemmta sér, upplifa og læra með því að sjá og snerta. Veita öllum þeim undrum eftirtekt sem eru rétt við tærnar á manni. Það er ótrúlegt hvað er margt skrítið í náttúrunni og hvað litlir hlutir geta verið stórmerkilegir þegar vel er að gáð. Það þarf líka að læra að bera virðingu fyrir náttúrunni.

 

Náttúrubarnaskólinn var fyrst starfandi sumarið 2015 og er þetta því annað árið sem hann er starfræktur. Hefur honum verið vel tekið.

 

Það er ýmislegt skemmtilegt framundan í júlí, hér er dagskráin:

 

Fimmtudagur 14. júlí

Náttúrubarnanámskeið kl. 13-17 með fuglaþema, verð 3.000 kr.

 

Þriðjudagur 19. júlí

Kvöldganga á Kirkjubólsfjall frá Sævangi kl. 20. Kökur og kaffi eftir gönguna, verð 1.000 kr.

 

Miðvikudagur 20. júlí

Jurtanámskeið fyrir fullorðna þar sem við munum fræðast um notkun plantna á fyrri tímum, tínslu og varðveislu kl. 19.30-22.30 í Sævangi, búin verða til fjögur mismunandi jurtaseyði sem þjóna mismunandi tilgangi. Hafdís Sturlaugsdóttir kennir á námskeiðinu, verð 3.000 kr. og innifalið  kaffi og kökur.

 

Fimmtudagur 21. júlí

Náttúrubarnanámskeið kl. 13-17, verð 3.000 kr.

 

Helgin 23.-24. júlí

Helgarnámskeið Náttúrubarnaskólans kl. 13-17 báða dagana, brot af því besta, verð 6.000 kr.

 

Þriðjudagur 26. júlí

Kaffikvörn Náttúrubarnaskólans í Sævangi, skemmtilegur spurningaleikur fyrir alla fjölskylduna, vöffluhlaðborð fyrir 1.200 kr.

 

Fimmtudagur 28. júlí

Náttúrubarnanámskeið með galdraþema kl. 13-17, verð 3.000 kr.

 

Ennþá geta bæst við fleiri skemmtilegir viðburðir og verða þeir auglýstir þegar nær dregur á Facebook-síðu Náttúrubarnaskólans: facebook.com/natturubarnaskolinn.

 

Skráning á viðburðina í síma 661-2213 hjá Dagrúnu eða á natturubarnaskoli@gmail.com.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31