31. mars 2015 |
Aðalfundarboð: Fólk hvatt til að ganga í hópinn
Björgunarsveitin Heimamenn í Reykhólahreppi heldur aðalfund á miðvikudag í næstu viku, 8. apríl. Fundurinn verður í bækistöð sveitarinnar að Suðurbraut 5 á Reykhólum (rétt neðan við þorpið) og hefst kl. 20. Eins og tíðkast á slíkum fundum verða á dagskránni venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Aftur á móti er þessi fundur ekki einskorðaður við félagsfólk í sveitinni, sem vissulega er hvatt til að fjölmenna, heldur eru allir velkomnir sem vilja koma í hópinn, taka þátt í starfinu eða styðja það með einhverjum hætti.