12. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Aðalfundir Krabbameinsfélags og Reykhólasóknar
Tveir aðalfundir sem snerta íbúa í Reykhólahreppi verða kl. 17 í kvöld, mánudagskvöld. Aðalsafnaðarfundur Reykhólasóknar verður í Reykhólakirkju og verður gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári. Auk þess verða endurskoðaðir reikningar sóknar og kirkjugarðs fyrir síðasta ár afgreiddir. Kaffi og kökubiti. Allir sóknarmeðlimir 16 ára og eldri hafa tillögu- og atkvæðisrétt. Aðalfundur Krabbameinsfélags Breiðfirðinga verður í Tjarnarlundi í Saurbæ. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða fluttar fréttir af aðalfundi Krabbameinsfélags Íslands. Kaffiveitingar í boði félagsins.