26. ágúst 2016 |
Aðalfundur Krabbameinsfélags Breiðfirðinga
Aðalfundur Krabbameinsfélags Breiðfirðinga verður haldinn í húsi Rauða krossins í Búðardal miðvikudaginn 31. ágúst kl. 16.
Fundarefni:
- Venjuleg aðalfundarstörf.
- Kosinn fulltrúi á aðalfund Krabbameinsfélags Íslands.
- Fulltrúi frá Krabbameinsfélagi Íslands verður með fræðsluerindi um krabbamein.
- Önnur mál.
Við hvetjum alla núverandi félaga og aðra velunnara félagsins til að mæta á fundinn. Nýir félagar velkomnir.
Kaffiveitingar í boði félagsins. Fjölmennum og styrkjum starfið.
- Stjórnin.