24. september 2018 | Sveinn Ragnarsson
Aðalfundur skógræktarfélagsins Bjarkar
Aðalfundur og fræðslufundur skógræktarfélagsins Bjarkar verður
haldinn fimmtudaginn 27. september kl. 20 í bókasafni Reykhólaskóla.
Dagskrá.
1. Skýrsla formanns
2. Aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins
3. Gerð grein fyrir reikningum félagsins
4. Fræðslufundur og erindi, Brynjólfur Jónsson
framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands
5. önnur mál
Til fundarins boða Guðlaugur Theodórsson formaður skógræktarfélagins Bjarkar og
Brynjólfur Jónsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags íslands.
Fólk er hvatt til að mæta og ganga í félagið.