Tenglar

24. apríl 2012 |

Aðalsafnaðarfundur Reykhólasóknar

Úr Reykhólakirkju.
Úr Reykhólakirkju.

Á aðalsafnaðarfundi Reykhólasóknar, sem verður í Reykhólakirkju annað kvöld, miðvikudag, og hefst kl. 20.30, verður fjallað um spurninguna Hefur úrskráning úr Þjóðkirkjunni áhrif á kirkjuna mína? Á fundinum verður einnig gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári. Afgreiddir verða endurskoðaðir reikningar sóknar og kirkjugarðs fyrir síðasta ár og önnur mál tekin fyrir.

 

Öll sóknarbörn 16 ára og eldri hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á aðalsafnaðarfundi. Sr. Elína Hrund sóknarprestur hvetur fólk til að koma á fundinn og taka þátt í uppbyggingu kirkjunnar sinnar. Kaffisopi og kökubiti verða á borðum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31